Beint á leiðarkerfi vefsins
Eir öldrunarmiðstöð

Öryggisíbúðir við Fróðengi 1-11 í Grafarvogi

 

Eirborgir - Öryggisíbúðir

  • yfirlit-stor-150Þægilegar nýjar öryggisíbúðir af ýmsum stærðum til ráðstöfunar

  • Fallegir garðar og góð bílastæði

  • Glæsileg þjónustumiðstöð með tengigangi við öryggisíbúðir Eirar verða teknar í notkun fyrri hluta árs 2014

  • Öryggisvakt allan sólarhringinn, tengd hjúkrunarvakt Eirar

  • Matsalur og fjölbreytt félagsstarf

  • Sjúkraþjálfun og dagdeild í nýrri þjónustumiðstöð

Eir hjúkrunarheimili hefur lokið við að byggja 111 glæsilegar öryggisíbúðir við Fróðengi í Grafarvogi, í nálægð við verslunarkjarna í Spönginni.  

Eir ráðstafar íbúðum til einstaklinga, 60 ára og eldri, sem óska eftir að komast í umhverfi og íbúðir sem veita öryggi en markmið þjónustunnar í Eirborgum er að auðvelda íbúum að búa sem lengst á eigin heimili. 

Framkvæmdir hefjast í sumar við byggingu þjónustumiðstöðvar við Fróðengi. Innangengt verður úr Eirborgum yfir í þjónustumiðstöðina. Þar er gert ráð fyrir rekstri dagdeildar fyrir heilabilaða á vegum Eirar og að Reykjavíkurborg leggi til húsnæði fyrir þá starfsemi. 


Hjónin Helga Mattína Einarsdóttir og Ólafur Guðnason

Þegar við keyptum íbúð í Eirborgum sóttumst við eftir öryggi. Við vorum búin að fá vitneskju um þjónustuna sem yrði í boði. Reynsla okkar er mjög góð og hefur staðist væntingar. Starfsfólkið er frábært og leysir úr öllum vanda strax.

Hjónin Ásta Jóhannsdóttir og Jóhann Þór Sigurbergsson

Þegar við keyptum íbúð í Eirborgum leituðum við eftir öryggi og tryggri þjónustu. Við teljum öryggisíbúðir eins og reknar eru af Eir vera bestu lausnina í búsetumálum eldri borgara. Þeir sem þurfa á slíku úrræði að halda ættu ekki draga of lengi að flytja í svona íbúðir. Okkar reynsla af þjónustu og starfsemi Eirborga er mjög góð. Allt starfsfólk Eirborga fær ágætiseinkunn. 


Stækka og minnka texta

Texti í sjálfgefinni stærð Texti í miðlungs stærð Texti í stórri stærð

Þú er hér:

Nýjar öryggisíbúðir » Eirborgir