Workplace er innri vefur starfsmanna á Eir, Skjól og Hömrum.
Hér er smá örkynning á Workplace til að gera skil á notagildi þess og eiginleikum:
- Hvað er Workplace?
Workplace er samskiptamiðill fyrir vinnustaði. Workplace byggir á sömu eiginleikum og viðmóti og Facebook, enda er hugbúnaðurinn framleiddur af sama aðila. Workplace-lausnin er sérsniðin fyrir umhverfi fyrirtækja og stofnana. Meginmunurinn á Workplace og Facebook er sá að Facebook er opið fyrir allan heiminn á meðan að Workplace er aðeins opið fyrir starfsmenn stofnunarinnar en einnig eru samskipti og efni sem er sett á Workplace dulkóðað á meðan engin dulkóðun er því sem sett er inn á Facebook. Utanaðkomandi geta því ekki tengst okkur. Workplace er því tilvalinn innri-vefur og vinnutól sem mun nýtast öllum starfsmönnum stofnunarinnar og bæta upplýsingaflæði á milli heimila og deilda. - Hvernig virkar Workplace?
Workplace er annars vegar veflausn, sem keyrir í vafra (browser) og hins vegar app fyrir bæði Apple IOS og Android sem má finna App Store eða Play Store. Kjarnavirkni Workplace felst í hópum, fréttum og samtölum með texta, hljóði og/eða mynd, viðburðum, könnunum og skjalasamskiptum. - Tengist Facebook-ið mitt Workplace?
Nei. Þó svo að það séu sömu framleiðendur á bak við þessi forrit þá tengjast miðlarnir ekki. Það þarf að útbúa sérstakan Workplace prófíl fyrir hvern og einn starfsmann áður en hann getur tengst Workplace. - Hvers vegna eru heimilin búin að innleiða Workplace?
Til að auka samskipti og upplýsingaflæði hjá stofnuninni á milli allra aðila. Þetta er einnig góð leið til að færa fólk nær hvort öðru. Workplace gerir öllu starfsfólki kleift að miðla fréttum og fjölbreyttum upplýsingum í eigin hópum (grúppum). Starfsfólk er eindregið hvatt til að taka virkan þátt í fréttamiðlun í sínum grúppum, í máli og myndum. - Hvað verður um Facebook hópa sem tengjast vinnunni? Ekki er leyfilegt að vera með slíka hópa á Facebook eða öðrum samfélagsmiðlum. Öll slík samskipti þurfa að fara í gegnum hópa og spjall á Workplace en þar munu stjórnendur koma skilaboðum áleiðis til starfsmanna, aukavaktir auglýstar og margt, margt fleira.
- Hvenær og hvernig mun ég skrá mig inn á Workplace?
Starfsfólk fær tölvupóst með kóða til að virkja notanda sinn á Workplace. Hægt er að leita til skrifstofu til að fá nýjan kóða ef þarf. - Við starfslok lokast fyrir aðgang
Workplace-hópar (grúppur) munu því einvörðungu innihalda núverandi starfsfólk stofnunarinnar. - Workplace er vinnutól
Workplace er fyrir málefni sem tengjast vinnustaðnum, starfsfólki og áhugamálum eins og þau tengjast vinnunni.
Workplace er ekki fyrir persónuleg málefni eða skoðanir okkar á mönnum og málefnum hversdagsins. Sýnum skynsemi. - Gilda sérstakar samskiptareglur á Workplace?
Mikilvægt er að viðhafa sömu faglegu vinnubrögð og hegðun á Workplace eins og í öðrum störfum fyrir heimilin. Workplace má ekki nota til að deila viðkvæmum upplýsingum sem falla undir klíníska starfsemi, sjúklingagögn, trúnaðarupplýsingar, persónulega hagi o.þ.h. Annar hugbúnaður heimilanna er sérstaklega hugsaður fyrir slík samskipti; Saga og fleiri kerfi. Sömu lögmál gilda um friðhelgi einkalífsins á Workplace eins og annars staðar.