

Velkomin/n á Eir hjúkrunarheimili
Okkur er sönn ánægja að bjóða þig velkomna/velkominn til búsetu hér á Eir hjúkrunarheimili. Hér á eftir fylgja ýmsar upplýsingar um hjúkrunarheimilið sem við vonum að komi þér og aðstandendum þínum að gagni.
Eir hjúkrunarheimili hóf rekstur 1993 og eru átta hjúkrunardeildir á heimilinu og tvær dagþjálfanir fyrir heilabilaða.
Í samvinnu við Landspítalann býður Eir upp á endurhæfingu, fyrir aldraða eftir brot og liðskiptaaðgerðir, auk fjölþættrar stoðþjónustu.
Eir rekur öryggisíbúðir í Eirarhúsum við Eir, Eirhamra í Mosfellsbæ og Eirborgir við Spöngina í Grafarvogi. Á þessum stöðum er veitt hjúkrunar- og félagsþjónusta til íbúa með samþykkta beiðni um þjónustu.
Aðbúnaður
- Á hjúkrunarheimilinu eru átta heimiliseiningar.
- Í A húsi eru heimiliseiningarnar með einbýlum og tvíbýlum. Í B húsi eru einbýli. Í sambýlinu Eirarholti, sem er í Eirarhúsum, eru einbýli og fjölbýli. Möguleiki er á hjónaherbergi.
- Eins og að framan er greint getum við ekki boðið öllum einbýli. Í starfi okkar er reynt að hafa að leiðarljósi jafnrétti og velferð allra heimilismanna. Vegna þessa áskiljum við okkur rétt til að gera breytingar á herbergjaskipan og gera tilfærslur milli eininga ef ákveðnar aðstæður skapast. Lagt er fyrir sjónvarpi og síma í öll herbergi ásamt þráðlausu Interneti. Eir leggur til rúm, rúmfatnað og náttborð, en að öðru leyti sér viðkomandi um að búa herbergi sitt eftir eigin óskum. Hafa þarf í huga að skapa gott vinnurými fyrir starfsfólk. Jafnframt getur komið upp sú staða að gera þurfi tilfæringar á húsgögnum ef heimilismaður veikist alvarlega.
- Við vekjum athygli ykkar á því að Eir tekur ekki ábyrgð á persónulegum eigum heimilismanns eða fjármunum.
Hjúkrun
- Framkvæmdastjóri hjúkrunar ber ábyrgð á þeirri hjúkrun og umönnun sem veitt er á heimilinu.
- Hjúkrunardeildarstjórar eru ábyrgir fyrir hjúkrun, umönnun og daglegu umfangi á deildum.
- Hjúkrunarráð sem skipað er ofantöldum aðilum, ásamt forstöðumanni hjúkrunar, skipuleggur og stjórnar hjúkrunarþjónustunni á heimilinu.
- Hjúkrunarfræðingar bera ábyrgð á hjúkrunarþjónustunni allan sólarhringinn.
- Sjúkraliðar, félagsliðar og umönnunarstarfsmenn annast umönnun í hjúkrun eftir þörfum hvers og eins, á ábyrgð hjúkrunarfræðings á vakt.
Læknisþjónusta
- Framkvæmdastjóri lækninga ber ábyrgð á læknisþjónustu heimilisins. Hver heimiliseining hefur sinn lækni sem kemur á stofugang einu sinni í viku. Á heimilinu er læknir frá kl. 8:00-12:00 alla virka daga. Bakvakt er allan sólarhringinn og læknir kemur við á öllum heimiliseiningum um helgar og á hátíðisdögum. Í gildi er samningur við tannlækni, augnlækni, kvensjúkdómalækni og húðsjúkdómalækni. Ef þörf er á þjónustu annarra sérfræðinga sér læknir íbúans um þau samskipti.
- Ef heimilismaður þarf að sækja þjónustu utan heimilisins er gert ráð fyrir að aðstandandi fylgi viðkomandi.
Sjúkraþjálfun
- Heimilismönnum stendur til boða sjúkraþjálfun samkvæmt beiðni læknis íbúans.
Iðjuþjálfun og félagsstarf
- Heimilismönnum stendur til boða iðjuþjálfun samkvæmt beiðni læknis. Veitt er einstaklingsþjálfun þar sem reynt er að veita heimilismönnum tækifæri til þátttöku og virkja einstaklinginn í þeirri iðju sem hefur þýðingu fyrir hann og veitir honum ánægju.
- Í vinnustofu eru viðfangsefnin mörg og mismunandi eftir áhugasviði íbúa og árstíðabundnum verkefnum. Í boði er skipulagt félagstarf á heimiliseiningum.
- Íbúum heimilisins standa til boða ýmis afþreying s.s. samkomur, söngskemmtanir, og árstíðartengdar skemmtanir.
Sálgæsla
- Íbúar heimilisins geta óskað eftir sálgæslu prests frá Grafarvogssókn. Einnig er hægt að óska eftir þjónustu annarra presta eða aðila frá öðrum trúfélögum. Guðsþjónusta er haldin einu sinni í mánuði á torginu á 1.h. Eirar. Hátíðarmessur eru á jóla- og páskadegi.
Fatnaður og þvottur
- Heimilismenn sjá sér fyrir hentugum og góðum fatnaði. Mikilvægt er að huga að góðum inniskóm sem falla vel að fæti, lágbotna með stömum sóla, sitji fast á fæti og lofti vel. Hafi heimilismaður getu og óskir um að stunda útiveru er mikilvægt að hann hafi yfirhöfn og góða skó.
- Eir leggur til rúmfatnað og handklæði sé þess óskað.
- Heimilið annast þvott á persónulegum fatnaði íbúa nema samkomulag sé um annað. Reynsla heimilisins er sú að aðstandendur kjósa oft að annast þvottinn sjálfir. Einungis er hægt að þvo fatnað á heimilinu sem má fara í þvottavél og þurrkara.
- Heimilið ber ekki ábyrgð á meðferð á persónulegum fatnaði, verði hann fyrir skemmdum á þvotti. Íbúar leggja til eigin óhreinatauskörfu.
- Heimilismaður leggur til snyrtivörur til eigin nota, svo sem sjampó, svitalyktareyði, tannbursta, tannkrem og rakvél. Mikilvægt er að tannburstar séu endurnýjaðir þrisvar til fjórum sinnum á ári. Rafmagnstannburstar geta verið heppilegir fyrir suma.
Önnur þjónusta
- Þjónusta hjá hárgreiðslustofu, fótaaðgerðarstofu og snyrtifræðingi er í boði gegn greiðslu.
- Þessi þjónusta er oft mjög mikilvæg og getur aukið vellíðan heimilismanna.
- Heimilismenn geta þurft að borga kostnaðarþátttöku, en það er hlutdeild í dvalarkostnaði á hjúkrunarheimili. Eir innheimtir fyrir Tryggingastofnun ríkisins kostnaðarþátttöku heimilismanna, en Tryggingastofnun reiknar út kostnaðarþátttökuna og veitir nánari upplýsingar um útreikningana í síma 560 4400.
- Aðstandendur sem þurfa að hafa samband við Eir vegna greiðsluþátttöku heimilismanna geta haft samband við bókhalds- og launadeild Eirar í síma 522 5700 eða á netfangið skrifstofa@eir.is.
- Nánari upplýsingar um kostnaðarþátttöku má finna á heimasíðu TR: www.tr.is/65/dvol-a-stofnun.
Símanúmer á deildir
Deild | Vaktsími | Deildarstjórasími |
2. hæð norður | 522 5721 | 522 5722 |
2. hæð suður | 522 5725 | 522 5726 |
3. hæð norður | 552 5731 | 522 5732 |
3. hæð suður | 552 5735 | 552 5732 |
4. hæð | 522 5741 | 522 5749 |
Eirarholt | 522 5792 | 522 5722 |
1. hæð B | 522 5718 | 522 5717 |
2. hæð B | 522 5728 | 522 5717 |
3. hæð B | 522 5738 | 522 5730 |