Search
Dagþjálfun Eirar

Dagþjálfun Eirar

Borgasel og Óðinshús eru sérhæfðar dagþjálfanir fyrir einstaklinga með heilabilunarsjúkdóma. Markmið deildanna er að gera einstaklingum sem þær sækja kleift að viðhalda sjálfsbjargargetu eins og hægt er og að rjúfa félagslega einangrun. Markmiðið er einnig að gera einstaklingnum kleift að búa heima sem lengst og að létta undir með aðstandendum.

Þjónusta dagþjálfunar er sniðin að þörfum, áhuga og getu hvers einstaklings og er sveigjanleiki lykilhugtak í þjónustunni. Mikið er lagt uppúr góðum anda og afslöppuðu en virku andrúmslofti.

Boðið er uppá skipulagða iðju í dagþjálfun sem styður við og viðheldur líkamlegri færni, vitrænni getu og hvetur til félagslegrar þátttöku. Virk þátttaka í iðju sem höfðar til einstaklingsins, er honum mikilvæg og hann hefur getu til að framkvæma stuðlar jafnframt oft að bættri andlegri líðan.

Iðja sem er í boði í dagþjálfun er t.d. morgunleikfimi, gönguferðir, fréttaumræður, söngur, tónlistarbingó, endurminningastarf, spil, púsl, boccia, pútt, píla, þrautir, krossgátur, orða-og spurningaleikir, hannyrðir og handverk í vinnustofu.

Auk þessa er farið í ferðir í almenningsrými t.d. á bókasafn, á kaffihús, í verslun og á söfn.

Deildarnar eru opnar alla virka daga frá kl. 8-16. Þar starfar fjölbreyttur hópur sérhæfðra starfsmanna, sjúkraliðar, félagsliðar, hjúkrunarfræðingur, iðjuþjálfi og læknir. Máltíðir og akstur er innifalið í daggjaldi sem skv. reglugerð er um 1300.-kr/dag. Einnig er greitt í afþreyingarsjóð.

Aðgengi er að sjúkraþjálfun, hárgreiðslu og fótaaðgerðastofu gegn gjaldi.

Fréttir úr starfinu eru opnar skjólstæðingum og aðstandendum þeirra í lokuðum Facebook hópum deildanna. Hægt er að óska eftir aðgangi að hópunum hér:

Borgasel: https://www.facebook.com/groups/borgasel

Óðinshús: https://www.facebook.com/groups/dagdeildeir

Nánari upplýsingar:

Borgasel, Spönginni 43, 2.hæð. Sími: 555-1221.

Óðinshús, Fróðengi 9. Sími: 522-5738.

Deildarstjóri dagdeilda:

Hafdís Jóna Stefánsdóttir  hjúkrunarfræðingur 860-7488. Netfang: dagdeild@eir.is

Verkefnastjóri iðjuþjálfunar í dagþjálfun:

Eva Hagalín Jónsdóttir iðjuþjálfi. Netfang: evaj@eir.is