Search
Hlýjan dagþjálfun

Hlýjan dagþjálfun

Hlýjan er blönduð dagdvöl og dagþjálfun staðsett á Eirhömrum í Mosfellsbæ. Hlýjan er með 15 almenn dagdvalarrými og 10 sérhæfð rými fyrir einstaklinga með heilabilunarsjúkdóma.
Markmið deildarinnar er að gera einstaklingum sem þær sækja kleift að viðhalda og/eða bæta líkamlega færni og vitræna getu í gegnum fjölbreytta iðju og félagslega þátttöku. Að viðhalda sjálfsbjargargetu eins og hægt er og rjúfa félagslega einangrun. Markmiðið er einnig að gera einstaklingnum kleift að búa heima sem lengst og að létta undir með aðstandendum.

Þjónusta er sniðin að þörfum, áhuga og getu hvers einstaklings og er sveigjanleiki lykilhugtak í þjónustunni. Mikið er lagt uppúr góðum anda og afslöppuðu en virku andrúmslofti. Boðið er uppá skipulagða iðju sem styður við og viðheldur líkamlegri færni, vitrænni getu og hvetur til félagslegrar þátttöku. Virk þátttaka í iðju sem höfðar til einstaklingsins, er honum mikilvæg og hann hefur getu til að framkvæma stuðlar jafnframt oft að bættri andlegri líðan.
Iðja sem er í boði er t.d. morgunleikfimi, gönguferðir, fréttaumræður, söngur, tónlist, tónlistarbingó, endurminningastarf, spil, púsl, boccia, pútt, píla, þrautir, krossgátur, orða-og spurningaleikir, hannyrðir og handverk í vinnustofu.

Deildin er opin alla virka daga frá kl. 8-15. Þar starfar fjölbreyttur hópur sérhæfðra starfsmanna.

Aðgengi er að sjúkraþjálfun, nuddi, hárgreiðslu og fótaaðgerðastofu gegn gjaldi.

Akstur til og frá Hlýjunni er á vegum Pant akstursþjónustu.

Nánari upplýsingar:

Hlýjan, Eirhömrum, Hlaðhamrar 2, 270 Mosfellsbær, sími: 858-5393

Óðinshús, Fróðengi 9, 112 Reykjavík, sími: 522-5738.

Verkefnastjóri Hlýjunnar:
Margrét Valdimarsdóttir Richter
Netfang: hamrar.dagdeild@eir.is

Verkefnastjóri iðjuþjálfunar í dagþjálfun:
Eva Hagalín Jónsdóttir iðjuþjálfi
Netfang: evaj@eir.is