Search
Læknisþjónusta á Skjóli

Læknisþjónusta á Skjóli

Læknisþjónusta í Skjóli er veitt af sérfræðingum í öldrunarlækningum eða heimilislækningum. Hver heimilismaður hefur sinn deildarlækni.

Í Skjóli er veitt læknisþjónusta alla daga ársins. Þjónustan er veitt með fastri vikulegri heimsókn deildarlæknis og styttri heimsóknum annarra lækna heimilisins virka daga, vaktlækna aðra daga ársins með heimsóknum og bakvöktum. Vaktþjónusta er rekin allan sólarhringinn í tengslum við hjúkrunarheimilin Eir og Hamra.

Á hverri deild er haldinn vikulegur fundur með hjúkrunarfólki og öðrum aðilum eftir atvikum þar sem lögð er áhersla á sameiginlega lausn á vanda heimilisfólksins. Þá eru haldnir fjölskyldufundir með heimilismönnum og aðstandendum þeirra á fyrstu mánuðum dvalar og síðan endurtekið eftir aðstæðum og þörfum.

Við breytingu á líðan íbúa er meginstefnan að meðhöndla veikindi á heimilinu og líkna og hjúkra heimilismönnum innan veggja þess.

Læknar ráðleggja meðferð í samráði við sjúkling og/eða aðstandendur hans. Með hliðsjón af læknisfræðilegu mati, vilja og óskum einstaklingsins er leitast við að veita læknisþjónustu sem er sniðin að þörfum hans og miðar að bættri heilsu og góðri líðan. Læknar heimilisins beina íbúum í sjúkraþjálfun og iðjuþjálfun Læknar heimilisins beina íbúum í sjúkraþjálfun og iðjuþjálfun og eftir atvikum til annarra sérfræðinga í ljósi heilsufars þeirra.

Við erum í samvinnu við tannlækna sem koma á heimilin og meta íbúa. Ef þörf er á viðgerðum kalla þeir eftir atvikum íbúa inn á stofuna til sín. Ef íbúi er með eigin tannlæknir hvetjum við aðstandendur til að hjálpa íbúanum við að passa upp á reglulegar tannlæknaferðir. Kostnaður við ferðir er í höndum íbúa.

Framkvæmdastjóri lækninga er Ólafur Helgi Samúelsson.

Læknar einstakra heimilisdeilda:

  • 3 hæð: Þorkell Elí Guðmundsson/Haraldur Dungal
  • 4 hæð: Sigurbjörn Björnsson/Haraldur Dungal
  • 5 hæð: Björn Gunnlaugsson/Þorkell Elí Guðmundsson
  • 6 hæð: Sigurbjörn Björnsson
  • Laugaskjól: Sigurbjörn Björnsson

Heilbrigðisgagnafræðingar eru Jóhanna Hjördís Guðmundsdóttir og Elín Eva Grímsdóttir.