Search
Sjúkraþjálfun á Hömrum

Sjúkraþjálfun á Hömrum

Salur sjúkraþjálfunar á Hömrum er
staðsettur á 1. hæð.

Markviss þjálfun og hreyfing eykur
lífsgæði íbúa og er séð til þess að sem flestir njóti hreyfingar sem oftast.
Hver íbúi hefur sinn afmarkaða tíma í sjúkraþjálfun. Þar fá heimilismenn
æfingar við hæfi hvers og eins með aðstoð sjúkraþjálfara, íþróttafræðings og
aðstoðarfólks. Að auki er boðið upp á einstaklingsmeðferð t.d. verkjameðferð
fyrir þá sem þurfa. Starfsfólk fer einnig út á deildirnar og eru þar með
hópæfingar, gönguæfingar og kreppuvarnir.

Sjúkraþjálfarar og iðjuþjálfar annast
útvegun hjálpartækja.

 

Sjúkraþjálfunin er opin þriðjudaga og
fimmtudaga  8:30-15:30 og föstudaga 8:00
– 11:30 

Yfirsjúkraþjálfari er Björg Hákonardóttir