Eldhúsið er staðsett að Hlíðarhúsum 7, 112 Reykjavík og er miðlægt framleiðslueldhús Eirar, Skjóls og Hamra hjúkrunarheimila og öryggisíbúða í Eirarhúsum og Eirhömrum. Boðið er upp á fjölbreyttan og hollan heimilismat í mötuneytum fyrir íbúa hjúkrunarheimilanna, öryggisíbúðanna sem og fyrir starfsmenn og gesti, sbr. útgefna matseðila. Næringarfræðingur veitir ráðgjöf um samsetningu máltíðanna.
Eldað er eftir 8 vikna rúllandi matseðlum með tilfallandi breytingum en að jafnaði eru eldaðir um 550 matarskammtar í hvert mál. Tvö kvöld í viku er heimilsfólki boðið upp á fullkomana máltíð, heitan eðan kaldan mat. Önnur kvöld er borinn fram léttari matur, brauð með áleggi ásamt grautum eða súpum. Íbúar í Eirarhúsum og Eirhömrum er boðið upp á að kaupa heimsenda matarbakka á kvöldin.