Læknisþjónusta á Eir er veitt af sérfræðingum í öldrunarlækningum eða heimilislækningum. Hver deild heimilisins hefur sinn deildarlækni.
Á Eir er veitt læknisþjónusta alla daga ársins. Þjónustan er veitt með fastri vikulegri heimsókn deildarlæknis og styttri heimsóknum annarra lækna heimilisins eða vaktlækna aðra daga ársins. Vaktþjónusta er rekin allan sólarhringinn í tengslum við hjúkrunarheimilin Skjól og Hamra.
Á hverri deild er haldinn vikulegur fundur með hjúkrunarfólki og öðrum aðilum eftir atvikum þar sem lögð er áhersla á sameiginlega lausn á vanda heimilisfólksins. Þá eru haldnir fjölskyldufundir með heimilismönnum og aðstandendum þeirra á fyrstu mánuðum dvalar og síðan endurtekið eftir aðstæðum og þörfum.
Við breytingu á líðan íbúa er meginstefnan að meðhöndla veikindi á heimilinu og líkna og hjúkra heimilismönnum innan veggja þess.
Læknar ráðleggja meðferð í samráði við sjúkling og/eða aðstandendur hans. Með hliðsjón af læknisfræðilegu mati, vilja og óskum einstaklingsins er leitast við að veita læknisþjónustu sem er sniðin að þörfum hans og miðar að bættri heilsu og góðri líðan. Læknar heimilisins beina íbúum í sjúkraþjálfun og iðjuþjálfun Læknar heimilisins beina íbúum í sjúkraþjálfun og iðjuþjálfun og eftir atvikum til annarra sérfræðinga í ljósi heilsufars þeirra.
Heimilið er í samvinnu við tannlækna sem koma á heimilin og meta íbúa. Ef þörf er á viðgerðum kalla þeir íbúa inn á stofuna til sín. Tannlæknir kemur reglulega á heimilið.
Á 4. hæð á Eir er rekin öflug 44 rúma endurhæfingardeild þar sem sinnt er eldri einstakingum sem koma frá Landspítala til framhaldsmeðferðar og endurhæfingar eftir heilsufarsáföll. Starfinu er sinn af teymi lækna, hjúkrunarfræðinga, sjúkraþjálfara, iðjuþjálfa og félagsráðgjafa auk sjúkraliða og umönnunarfólks.
Framkvæmdastjóri lækninga er Ólafur Helgi Samúelsson.
Læknar einstakra heimilisdeilda:
- 2N: Eyrún Baldursdóttir
- 2S: Baldur Thorstensen
- 3N og Eirarholt: Ólafur Helgi Samúelsson
- 3S: Björn Gunnlaugsson
- B1: Gríma Huld Blængsdóttir
- B2: Þorkell Elí Guðmundsson
- 4. hæð endurhæfing: Ólafur Helgi Samúelsson, Eyrún Baldursdóttir og Hjörtur Þór Hauksson
Heilbrigðisgagnafræðingar eru Jóhanna Hjördís Guðmundsdóttir og Elín Eva Grímsdóttir.