Search
Sjúkraþjálfun á Eir

Sjúkraþjálfun á Eir

Sjúkraþjálfun er staðsett á þriðju hæð í B-húsi.

Markviss þjálfun og hreyfing eykur lífsgæði íbúa og er séð til þess að sem flestir njóti hreyfingar sem oftast. Hver deild á Eir hefur sinn afmarkaða tíma í sjúkraþjálfun. Þar fá heimilismenn æfingar við hæfi hvers og eins með aðstoð sjúkraþjálfara, íþróttafræðings og aðstoðarfólks. Að auki er boðið upp á einstaklingsmeðferð t.d. verkjameðferð fyrir þá sem þurfa. Starfsfólk fer einnig út á deildirnar og eru þar með hópæfingar, gönguæfingar og kreppuvarnir.

Endurhæfingardeild er starfrækt á fjórðu hæð Eirar í samvinnu við Landspítala háskólasjúkrahús þar sem eldra fólk fær endurhæfingu eftir beinbrot, liðskiptaaðgerðir og langvinn veikindi og útskrifast síðan heim.

Sjúkraþjálfarar sinna einnig göngudeildarþjónustu fyrir íbúa öryggisíbúða og þá sem eru í dagþjálfun.

Sjúkraþjálfarar og iðjuþjálfar annast útvegun hjálpartækja.

 

Sjúkraþjálfunin er opin virka daga frá 8:00-15:30
Sími: 
522 5745
Netfang: 
sjukrathj@eir.is

Yfirsjúkraþjálfari er Björg Hákonardóttir
Netfang: 
bhakonardottir@eir.is