Search
Læknisþjónusta á Hömrum

Læknisþjónusta á Hömrum

Læknisþjónusta í Hömrum er veitt af sérfræðingum í öldrunarlækningum eða heimilislækningum. Hver heimilismaður hefur sinn deildarlækni.

Á Hömrum er veitt læknisþjónusta alla daga ársins. Deildarlæknir kemur fast tvisvar sinnum í viku. Vaktþjónusta er rekin allan sólarhringinn í tengslum við hjúkrunarheimilin Eir og Skjól.

Á heimilinu eru  haldnir tvisvar sinnum í viku, þar sem læknir og hjúkrunarfólk og með öðrum aðilum eftir atvikum, fundir þar sem lögð er áhersla á sameiginlega lausn á vanda heimilisfólksins. Þá eru einnig  haldnir fjölskyldufundir með heimilismönnum og aðstandendum þeirra á fyrstu mánuðum dvalar og síðan endurtekið eftir aðstæðum og þörfum.

Við breytingu á líðan íbúa er meginstefnan að meðhöndla veikindi á heimilinu og líkna og hjúkra heimilismönnum innan veggja þess.

Deildarlæknir ráðleggur meðferð í samráði við sjúkling og/eða aðstandendur hans. Með hliðsjón af læknisfræðilegu mati, vilja og óskum einstaklingsins er leitast við að veita læknisþjónustu sem sniðin er að þörfum hans og miðar að bættri heilsu og góðri líðan. Læknar heimilisins beina íbúum í sjúkraþjálfun og iðjuþjálfun í ljósi heilsufars þeirra.

Önnur sérfræðiþjónusta er ekki veitt á Hömrum en læknar heimilana ráðfæra sig við aðra sérfræðinga eftir atvikum. Sú sérfræðiráðgjöf fer í flestum tilfellum fram utan heimilisins.

Flestir íbúar halda sínum tannlækni en hægt er að kalla eftir mati og meðferð tannlæknis þegar þörf er á.

Framkvæmdastjóri lækninga er Ólafur Helgi Samúelsson.

Læknar heimilisdeilda:

  • Klörustofa: Ólafur Sveinbjörnsson
  • Helgustofa: Ólafur Sveinbjörnsson
  • Auðarstofa: Ólafur Sveinbjörnsson

Heilbrigðisgagnafræðingar eru Jóhanna Hjördís Guðmundsdóttir og Elín Eva Grímsdóttir