Search

Kynning á samþættri öldrunarþjónustu í heimsókn þingmanna á Eirhamra

Í Kjördæmaviku Alþingis heimsóttu þingmenn Sjálfstæðisflokksins Eirhamra. Eybjörg Helga Hauksdóttir, forstjóri Eirar, Skjóls og Hamra og Ingi Þór Ágústsson, forstöðumaður þjónustu á Eirhömrum og Hömrum, kynntu þar umfangsmikla og samþætta starfsemi Eirar á sviði öldrunarþjónustu. Sérstök áhersla var lögð á tilraunaverkefnið Gott að eldast, sem hófst í Mosfellsbæ þann 1. apríl 2025.

Markmið verkefnisins er að samþætta heimastuðning og heimahjúkrun auk þess að starfrækja samhliða heimaendurhæfingu, þannig að þjónustan verði markvissari og betur samhæfð. Frá Eirhömrum er allri starfseminni stýrt, þar með talið rekstri hjúkrunarheimilisins Hamra og dagþjálfunarinnar Hlýjunnar sem hefur verið markvisst efld og stækkuð. Með þessari skipan er öll þjónustukeðjan komin undir rekstur og umsjón Eirar. Sú heildarsýn stuðlar að aukinni samfellu í þjónustu, bættri yfirsýn og meiri gæðum í öldrunarþjónustu sveitarfélagsins.

Gestir á Eirhömrum voru Rósa Guðbjartsdóttir, Guðlaugur Þór Þórðarson, Diljá Mist Einarsdóttir, Bryndís Haraldsdóttir, Júlíus Viggó Ólafsson og Tinna Eyvindardóttir. 

Deila

Meira

Alþjóðadagur iðjuþjálfa

Mánudaginn 27. október er Alþjóðadagur iðjuþjálfa. Í því tilefni verður iðjuþjálfun með kynningu á starfi sínu á Torginu á Eir þann dag milli 13:00 –