Search

Þingmenn Sjálfstæðisflokks kynntu sér starfsemi Skjóls

Í tilefni Kjördæmaviku Alþingis, þegar hefðbundnir þingfundir liggja niðri og þingmenn heimsækja kjördæmi sín til að kynna sér ýmiss konar starfsemi, komu þingmenn úr Sjálfstæðisflokknum í heimsókn á Skjól.

Eybjörg Helga Hauksdóttir, forstjóri Eirar, Skjóls og Hamra, tók á móti gestunum og kynnti starfsemi sjálfseignarstofnunarinnar Skjóls og þá þjónustu sem þar er veitt. Einnig var farið yfir þær fjölmörgu áskoranir sem öldrunarþjónustan stendur frammi fyrir í dag og rætt um mikilvægi óhagnaðardrifinna stofnana í þeirri þjónustu.

Meðal þeirra sem tóku þátt í kynningunni voru Ólafur Samúelsson, framkvæmdastjóri læknasviðs, Kjartan Kjartansson framkvæmdastjóri fjármála- og rekstrarsviðs og Íris Dögg Guðjónsdóttir, forstöðumaður hjúkrunar á Skjóli, ásamt öðru starfsfólki sem veitti innsýn í daglegt starf og faglega nálgun stofnunarinnar.

Gestirnir á Skjóli voru Guðlaugur Þór Þórðarson, Diljá Mist Einarsdóttir, Jón Pétur Zimsen, Sigurður Örn Hilmarsson og Jón Birgir Eiríksson.

Deila

Meira

Alþjóðadagur iðjuþjálfa

Mánudaginn 27. október er Alþjóðadagur iðjuþjálfa. Í því tilefni verður iðjuþjálfun með kynningu á starfi sínu á Torginu á Eir þann dag milli 13:00 –