Search
Samskiptasáttmáli Eirar, Skjóls og Hamra

Samskiptasáttmáli Eirar, Skjóls og Hamra

Við setjum góð samskipti í forgang, sem grunn að vellíðan allra. Þannig sköpum við öryggi, virðingu og gleði – fyrir okkur, samstarfsfólk, íbúa, skjólstæðinga og aðstandendur.

Við leggjum áherslu á eftirfarandi

Í samstarfi

  • Jákvæðni og hrós
    Tileinkum okkur jákvætt hugarfar og höfum gaman í vinnunni.
    Hrósum og viðurkennum vel unnin störf.
    Byrjum daginn með brosi og heilsumst.

  • Samvinna og hjálpsemi
    Vinnum öll saman sem ein heild – alltaf.
    Hjálpum hvort öðru, jafnvel þó það sé ekki „okkar“ ábyrgð.

  • Hlustun og nærvera
    Hlustum vandlega og gefum tíma til að öll fái að tjá sig.
    Verum til staðar og stuðlum að samveru og spjalli.

  • Hreinskilni og heiðarleiki
    Tölum VIÐ fólk, ekki UM það.
    Ræðum saman á uppbyggilegan hátt ef við erum ósammála.
    Fögnum ólíkum sjónarmiðum og lærum af hvort öðru.

  • Virðing og fagmennska
    Komum fram af virðingu í orði, verki og líkamstjáningu.
    Virðum öll jafnt – óháð stöðu, tungumálakunnáttu eða menningarmun.
    Sýnum fagmennsku í öllum samskiptum.

 Í þjónustu

  • Jákvæðni og nærvera
    Heilsum og brosum.
    Leggjum áherslu á jákvæðni og gleði í samskiptum.
    Gefum okkur tíma í afþreyingu og virkni.
    Síminn bíður – skjólstæðingar okkar ekki.

  • Hlustun og virðing
    Tölum við skjólstæðinga af virðingu.
    Hlustum á skjólstæðinga og sjáum hvernig þeim líður.
    Gefum þeim tíma til að tjá sig.
    Valið er þeirra, við erum þeim til aðstoðar.

  • Umhyggja og persónuleg þjónusta
    Erum til staðar fyrir skjólstæðinga og fjölskyldur þeirra.
    Munum mikilvæga hluti um hvern og einn.
    Bjóðum nýja skjólstæðinga og fjölskyldur velkomin.
    Sýnum þolinmæði og notum orð sem öll skilja.

Þetta forðumst við í öllum samskiptum

  • Baktal og slúður
    Tölum ekki um annað fólk á bak við það.
    Stöðvum baktal ef við heyrum það.

  • Símanotkun í starfi
    Lágmörkum notkun einkasímans.
    Nýtum vinnusímann eingöngu í starfi.

  • Virðingarleysi
    Tölum ekki niður til annarra.
    Gerum ekki lítið úr öðrum.
  • Neikvæðni
    Dreifum ekki neikvæðni.
    Leitum lausna í stað þess að tuða.
    Komum ábendingum í réttan farveg.
  • Að hunsa aðra
    Horfum ekki fram hjá fólki.
    Heilsum öllum sem við hittum.