Gæðastefna Eirar, Skjóls, Hamra og tengdra félaga
Tilgangur
Gæðastefnan er grunnur að öllu gæða- og umbótastarfi. Henni er ætlað að tryggja að þjónusta við skjólstæðinga, aðstandendur og starfsfólk sé fagleg, örugg og árangursmiðuð, í samræmi við gildi okkar og í samræmi við þær kröfur sem gerðar eru til starfseminnar. Gildin okkar eru virðing, vellíðan og virkni.
Umfang
Gæðastefnan nær yfir alla starfsemina. Hún á við um allt starfsfólk, stjórnendur og starfsstöðvar, sem og aðra aðila sem koma að starfseminni.
Markmið
- Við komum fram við skjólstæðinga, aðstandendur og starfsfólk af virðingu og reisn. Við leggjum áherslu á virka hlustun og fræðum starfsfólk okkar um samkennd og mikilvægi hennar.
- Tryggja að þjónusta við skjólstæðinga og aðstandendur sé í samræmi við opinberar kröfur sem gerðar eru til heilbrigðisþjónustu og endurhæfingar á Íslandi.
- Tryggja að starfsumhverfi og aðbúnaður starfsfólks sé í samræmi við opinberar kröfur.
- Nýtum gæðavísa, bæði við innra og ytra eftirlit til að meta hvort gæði og öryggi þjónustunnar séu í samræmi við viðurkennda faglega staðla og viðmið.
Ennfremur til að auka gæðavitund og stuðla að umbótum. - Stuðla að virkri gæða- og öryggismenningu þar sem starfsfólk eru virkir þátttakendur. Brugðist sé kerfisbundið við atvikum og frávikum í starfseminni.
- Gæðahandbók sé virk, notendavæn, aðgengileg öllu starfsfólki og endurskoðuð reglulega.
Ábyrgð
- Forstjóri, framkvæmdaráð, gæðaráð og gæðastjóri bera ábyrgð á gæðastefnu.
- Stjórnendur og starfsfólk ber ábyrgð á því að starfa samkvæmt gæðastefnu og gæðahandbók.
- Gæðastjóri ber ábyrgð á því að gæðastefnan sé sýnileg.
Endurskoðun og birting
- Gæðaráð og gæðastjóri endurskoða gæðastefnu tveggja ára fresti og leggja fyrir forstjóra og framkvæmdaráð til samþykktar.