Search

Hin árlega jónsmessuganga

Jónsmessuganga var haldin á Eir í hressandi veðri og var markmið dagsins að efla hreyfingu hjá öllum sem tengjast Eir hjúkrunarheimili. Við fórum í stutta göngu með Stefán Ómar Jakobsson harmonikkuleikara í fararbroddi, héldum svo inn þar sem allir fengu létta hressingu í boði Sónar e.hf.

Ylfa sjúkraþjálfari stýrði liðkunaræfingum og teygjum og eftir það tók við hópsöngur. Viljum við hjá félagsstarfi, iðju og sjúkraþjálfun þakka öllum sem sáu sér fært að mæta á skemmtunina, Stefáni Ómari Jakobssyni fyrir hljóðfæraleikinn og Sónar e.hf. fyrir veitingarnar.

Deila

Meira

Heimsókn borgarstjóra á Eir

Við á hjúkrunarheimilinu Eir fengum góða heimsókn á dögunum þegar Hildur Björnsdóttir, borgarstjóri Reykjavíkur, mætti til að kynna sér starfsemi Eirar, Skjóls og Hamra. Forstjóri

Öflugur hópur nýliða mættur til leiks!

Nýverið stóðu hjúkrunarheimilin okkar Eir, Skjól og Hamrar fyrir árlegri nýliðafræðslu. Yfir 50 nýir starfsmenn komu saman til að kynna sér helstu grundvallaratriði í umönnun