Við héldum hinn árlega hattadag föstudaginn var þann 20. maí. Flest allir klæddust mismunandi höttum sem gaf tilverunni líf og lit. Svo eftir hádegi kom Gerðubergskórinn í heimsókn og söng fyrir okkur. Það var mikið um húllumhæ og þegar mest var, þá var um 70 gestir í salnum og um 25 manns voru í kórnum. Sem sagt þröngt setið en gleðin var við völd. 


Kynning á samþættri öldrunarþjónustu í heimsókn þingmanna á Eirhamra
Í Kjördæmaviku Alþingis heimsóttu þingmenn Sjálfstæðisflokksins Eirhamra. Eybjörg Helga Hauksdóttir, forstjóri Eirar, Skjóls og Hamra og Ingi Þór Ágústsson, forstöðumaður þjónustu á Eirhömrum og Hömrum,

