Search

Heimsóknir um jólin

Á Skjóli verða heimsóknir heimilar um jólin sem hér segir:
Aðfangadagur, jóladagur og annar í jólum: Tveir gestir mega koma og stoppa í allt að 2 klst. á bilinu 13:00-17:30 og 19:30-22:00.
Athugið að þetta eru sömu tveir gestirnir alla dagana. Gestir verða að hringja á undan sér og skrá sig á deildinni þegar þeir koma. Allir gestir verða að koma með andlitsgrímu, gæta að tveggja metra reglunni, handþvotti og spritti. Gestir fara stystu leið inn á herbergi íbúa og stystu leið út aftur að heimsókn lokinni. Ekki er heimilt að dvelja í sameiginilegum rýmum. Sem fyrr er fólk beðið að koma alls ekki í heimsókn sé það kvefað eða með flensueinkenni eins og hita, slappleika, hósta eða þ.u.l.

Deila

Meira

Öflugur hópur nýliða mættur til leiks!

Nýverið stóðu hjúkrunarheimilin okkar Eir, Skjól og Hamrar fyrir árlegri nýliðafræðslu. Yfir 50 nýir starfsmenn komu saman til að kynna sér helstu grundvallaratriði í umönnun