Search

Heimsókn borgarstjóra á Eir

Við á hjúkrunarheimilinu Eir fengum góða heimsókn á dögunum þegar Hildur Björnsdóttir, borgarstjóri Reykjavíkur, mætti til að kynna sér starfsemi Eirar, Skjóls og Hamra.

Forstjóri Eirar ásamt starfsfólki tók á móti gestinum og sögðu frá fjölbreyttri starfsemi heimilanna, þeirri þjónustu sem þar er veitt og því mikilvæga starfi sem starfsfólk sinnir alla daga.

Að kynningu lokinni var haldið í skoðunarferð um Eir þar sem borgarstjóri fékk tækifæri til að sjá starfsemina með eigin augum. Meðal annars var komið við í sjúkra- og iðjuþjálfun og fengin innsýn í það fjölbreytta starf sem þar fer fram með það að markmiði að efla færni, virkni og lífsgæði heimilisfólks.

Heimiliskötturinn Max vakti athygli að venju en kippti sér þó lítið upp við gestaganginn.

Við þökkum borgarstjóra kærlega fyrir komuna og ánægjulega heimsókn!

Deila

Meira

Öflugur hópur nýliða mættur til leiks!

Nýverið stóðu hjúkrunarheimilin okkar Eir, Skjól og Hamrar fyrir árlegri nýliðafræðslu. Yfir 50 nýir starfsmenn komu saman til að kynna sér helstu grundvallaratriði í umönnun