Search

Aðstandendur athugið: Bakvarðasveit sýkingavarnarteymis

Kæru aðstandendur íbúa á Eir, Skjóli og Hömrum

Sökum ástands í COVID-19 faraldri, viljum við í sýkingavarnarteymi heimilanna, kanna hversu margir í hópi aðstandanda væru tilbúnir til þess að vera í bakvarðasveit okkar, ef til þess kæmi að starfsfólk þyrfti að fara í sóttkví eða einangrun í 14 daga.

Allir þeir sem vilja leggja hönd á plóg og hafa reynslu af umönnun, eru menntaðir heilbirgðisstarfsmenn eða geta létt undir á einhvern hátt eru beðnir um að senda tölvupóst á skrifstofa@eir.is  fyrir Eir og Hamra og skrifstofa@skjol.is  fyrir Skjól. Vinsamlegast gefið upp nafn, símanúmer eða netfang svo við getum haft samband við ykkur ef þörf krefur.

Við vonum innilega að ekki verði þörf á utanaðkomandi aðstoð, en allur er varinn góður.

Með kæru þakklæti og von um góðar undirtektir ?
Hjúkrunarheimilin Eir, Skjól og Hamrar

 

 

Deila

Meira

Öflugur hópur nýliða mættur til leiks!

Nýverið stóðu hjúkrunarheimilin okkar Eir, Skjól og Hamrar fyrir árlegri nýliðafræðslu. Yfir 50 nýir starfsmenn komu saman til að kynna sér helstu grundvallaratriði í umönnun