21. september 2020
Kæru aðstandendur,
Vegna aukningu smita í samfélaginu verðum við, tímabundið, að grípa til enn harðari ráðstafanna til að vernda íbúa. Í ljósi þess að mikil aukning er á smiti fólks í aldurshópnum 20-30 ára sem virðist fá mjög lítil sem engin einkenni sjúkdómsins biðlum við til þessa hóps að íhuga sérstaklega vel hvort ekki væri betra að bíða með heimsóknir á heimilin meðan þessi bylgja gengur yfir. Við bendum frekar á síma eða rafrænar heimsóknir þessa daganna.
Frá og með 21.september verður húsið læst og boða þarf komu sína til vakthafandi hjúkrunarfræðings eða deildarstjóra á viðkomandi deild. Gestir eru beðnir um að bera viðurkennda grímu og spritta hendur eftir snertingu við sameiginlega fleti s.s. lyftuhnappa, hurðarhúna, handrið o.þ.h.
Heimsóknartími er á milli 15:00 og 18:00 á hverjum degi
- Aðeins einn aðstandandi má heimsækja hvern íbúa, í klukkutíma í senn á degi hverjum.
- Áfram þarf að skrásetja komu sína í hvert sinn
- Gestir eru beðnir að gæta að 2ja metra reglunni og forðast beina snertingu við íbúa.
- Heimsóknargestir NOTA grímu og eru beðnir að gæta ítrasta hreinlætis og spritta hendur sínar í upphafi heimsóknar og í hvert sinn sem hann þarf að snerta sameiginlega fleti.
- Heimsóknagestir fara stystu leið beint inn á herbergi íbúans eins og kostur er og stystu leiðina út.
- Stranglega bannað er að dvelja í sameiginlegum rýmum heimilisins.
- Undir sérstökum kringumstæðum er hægt að veita undanþágu frá þessum reglum og er það deildarstjóri eða hjúkrunarfræðingur á vaktinni sem tekur slíkar ákvarðanir
Íbúi getur farið út af heimilinu til að sinna almennum erindum, s.s. læknisheimsóknir og heimsókn til náins ættingja. Mælst er til þess að íbúar fari ekki á hópfagnaði og forðist með öllu verslunarferðir og heimsóknir þar sem fleiri en 10 koma saman.
Aðstandendur eru hvattir til að hlaða niður smitrakningarappi almannavarna.