[divider style=“divider1″ backtotop=“no“ top_margin=“20″ bottom_margin=“20″]
Markmið hjúkrunar:
- – Veita persónulega þjónustu á faglegan og ábyrgan hátt.
- – Tryggja vellíðan og öryggi íbúa, standa vörð um sjálfvirðingu og ákvörðunarrétt þeirra.
- – Aðstoða íbúa við að aðlagast breyttum aðstæðum í heimilislegu umhverfi.
- – Viðhalda sjálfsbjargargetu og færni með líkamlegri og andlegri þjálfun.
- – Stuðla að góðu og persónulegu sambandi við ættingja
Hjúkrunaráætlun er unnin af hjúkrunarfræðingum í samvinnu við íbúa og aðstandendur þeirra og tengist hún markmiðum og gildum hjúkrunar á Eir.
Við lífslok eru tryggð ákveðin gæði í hjúkrun og meðferð íbúa og unnið með þverfaglegri meðferðaráætlun fyrir deyjandi – MÁD. Reglulega er metið ástand og þarfir einstaklingsins og aðstandendum er veittur stuðningur og fræðsla fyrir og eftir andlát.
Gildi hjúkrunar:
VIRÐING – VELLÍÐAN – VIRKNI
Nánar um gildi hjúkrunar hjá Eir
Framkvæmdastjóri hjúkrunar fyrir Eir, Eir öryggisíbúðir, Skjól og Hamra er Þórdís Hulda Tómasdóttir.
Hér að neðan er hægt að nálgast nánari upplýsingar um deildir og svið hjúkrunar hjá Eir
Deild – 1.B | Deild – 2.B | Deild – 2.N | Deild – 2.S | Deild – 3.N | Deild – 3.S | • Deild – 4. hæð: Brotaendurhæfing – Hvíldarinnlagnir – Biðpláss | Sambýlið Eirarholt | Dagdeildir | Eirarhús – öryggisíbúðir | Eirhamrar – öryggisíbúðir | Eirborgir – öryggisíbúðir
Deild – 1.B
Er staðsett á 1. hæð í B-húsi Eirar hjúkrunarheimilis, Hlíðarhúsum 7, 112 Reykjavík.
Heimilisdeild með 22 rýmum sem öll eru einbýli. Deildin skiptist í tvo kjarna, með 11 einbýlum í hvorum hluta, ásamt borð- og setustofu. Mögulegt er að útbúa hjónaeiningu með því að opna milli herbergja. Gott aðgengi er að útisvæði við Eir. Fallegt útsýni er til vesturs og víðar.
– Vaktsími: 522 5710
– Sími deildarstjóra: 522 5727
– Netfang: dst1b@eir.webdev.is
Deild – 2.B
Er staðsett á 2. hæð í B-húsi Eirar hjúkrunarheimilis, Hlíðarhúsum 7, 112 Reykjavík.
Deildin skiptist í tvo kjarna, með 11 einbýlum í hvorum hluta. Möguleiki er að opna milli herbergja og útbúa þannig hjónaeiningu. Auk þess eru borð- og setustofa í báðum einingum. Fallegt útsýni er yfir Grafarvoginn frá setustofunum. Bæði í norður og suður endum deildarinnar eru litlar setustofur og einnig rúmgóðar svalir sem heimilisfólk og aðstandendur nota mikið yfir sumarið.
– Vaktsími: 522 5720
– Sími deildarstjóra: 522 5727
– Netfang: dst.2b@eir.webdev.is
Deild – 2.N
Er staðsett á 2.hæð norðurgangi í A-húsi Eirar hjúkrunarheimilis, Hlíðarhúsum 7, 112 Reykjavík.
Heimilisdeild með 9 einbýli og 6 tvíbýli.
Deildin er rúmgóð með borðstofu og aðskilinni setustofu og opnu rými sem gefur góða möguleika á félagsstarfi og þjálfun fyrir íbúana. Við deildina er garður sem gefur möguleika á útiveru.
– Vaktsími: 522 5721
– Sími deildarstjóra: 522 5722
– Netfang: 2n@eir.webdev.is
Deild – 2.S
Er staðsett á 2. hæð á suðurgangi í A-húsi Eirar hjúkrunarheimilis, Hlíðarhúsum 7, 112 Reykjavík.
Heimilisdeild 11 einbýli og 8 tvíbýli.
Deildin er almenn hjúkrunardeild og leitast er við að sníða þjónustu að þörfum hvers og eins. Á deildinni er sameiginleg setustofa, rúmgóður matsalur og sjónvarpsstofa.
Samvera og tómstundastarf er daglega í boði fyrir einstaklinga ásamt sjúkraþjálfun.
– Vaktsími: 522 5725
– Sími deildarstjóra: 522 5726
– Netfang: 2s@eir.webdev.is
Deild – 3.N
Er staðsett á 3. hæð á norðurgangi í A-húsi Eirar hjúkrunarheimilis, Hlíðarhúsum 7, 112 Reykjavík.
Heimilisdeild 9 einbýli og 8 tvíbýli.
Sameiginleg setsvæði og rúmgóður matsalur er á deildinni auk þess er fallegt útsýni yfir Grafarvog og sundin.
– Vaktsími: 522 5731
– Sími deildarstjóra: 522 5732
– Netfang: 3n@eir.webdev.is
Deild – 3.S
Er staðsett á 3. hæð suðurgangi í A-húsi Eirar hjúkrunarheimilis, Hlíðarhúsum 7, 112 Reykjavík.
Heimilisdeild fyrir einstaklinga með heilabilun þar sem eru 9 einbýli og 8 tvíbýli.
Deildin skiptist í tvær einingar, með setsvæðum og borðstofu, sem gefa möguleika á fjölþættu félagsstarfi og þjálfun fyrir íbúana.
– Vaktsími: 522 5735
– Sími deildarstjóra: 522 5736
– Netfang: 3s@eir.webdev.is
Deild – 4 hæð: Brota- og endurhæfingardeild (24 rými) – Hvíldarinnlagnir (1 rými)
Deild 4. hæð er 25 rúma deild staðsett á 4. hæð í A-húsi Eirar hjúkrunarheimilis, Hlíðarhúsum 7, 112 Reykjavík.
Markmið deildarinnar er að veita þá bestu mögulegu hjúkrunar-, læknis- og þjálfunarmeðferð sem völ er á hverju sinni.
Metnaðarfullur hópur fagfólks leggur grunn að heildrænni einstaklingsmeðferð og markvissri útskriftaráætlun í samráði við skjólstæðinginn, ættingja og utanaðkomandi þjónustu – og umönnunaraðila.
Heimsóknartími á deildinni er milli kl 15-18 á virkum dögum og milli kl 13-18 um helgar.
Brota- og endurhæfing.
Er fyrir 67 ára og eldri einstaklinga sem hlotið hafa beinbrot, þurft liðskipti og/ eða eiga við stoðkerfisvandamál að stríða.
Unnið er samkvæmt samstarfssamningi við LSH. Einstaklingar koma á deildina eftir að bráðameðferð er lokið á LSH.
Endurhæfingartíminn er einstaklingsbundinn og miðast við færni og sjálfsbjargargetu einstaklingsins.
Hvíldarinnlagnir.
Hvíldarinnlagnir geta verið einu sinni til tvisvar á ári í 4-8 vikur í senn fyrir einstaklinga sem búa heima og þarfnast andlegrar, félagslegrar og/eða líkamlegrar endurhæfingar. Stundum getur líka verið þörf á að létta undir og hvíla þá sem styðja við búsetuna heima.
Unnið er í samvinnu við Færni- og heilsufarsnefnd höfuðborgarsvæðisins samkvæmt reglugerð.
– Vaktsími: 522 5741/ 522 5742
– Sími deildarstjóra: 522 5749
– Netfang : 4haed@eir.webdev.is
Eirarholt
Eirarholt er staðsett á 1. hæð í húsnæði öryggisíbúða Eirarhúsa, Hlíðarhúsum 3 – 5, 112 Reykjavík.
Eirarholt er hjúkrunardeild fyrir heilabilaða einstaklinga og jafnframt heimilisdeild. Um er að ræða níu einbýli og í stærstu herbergjunum geta hjón dvalið saman.
Íbúum stendur til boða öll sú þjónusta sem veitt er á Eir hjúkrunarheimili. Þá geta íbúar einnig sótt þær fjölmörgu skemmtanir sem haldnar eru á torginu við anddyri Eirar.
Hjúkrunareildin er fyrir heimilismenn sem hafa góða færni til þess að taka þátt í athöfnum daglegs lífs, samvistum við aðra heimilismenn og útiveru. Sameiginlegt setsvæði, borðstofa og garður gefa möguleika á fjölþættri samveru fyrir íbúa.
– Vaktsími: 522 5792 / 860 7407
– Netfang : eirarholt@eir.webdev.is
Dagdeildir
Eir hjúkrunarheimili rekur tvær sérhæfðar dagþjálfanir fyrir fólk með heilabilunarsjúkdóma í Óðinshúsi og Borgaseli:
– Óðinshús er staðsett á 3. hæð í B-húsi Eirar hjúkrunarheimilis í Hlíðarhúsum 7, 112 Reykjavík. Starfsemi hófst á deildinni 15. mars 2004 og er þar starfsleyfi fyrir 24 gesti á dag.
– Borgasel er staðsett í Spönginni 43, 112 Reykjavík í menningar- og þjónustumiðstöð Reykjavíkurborgar. Deildin var opnuð 2. mars 2015 og er þar starfsleyfi fyrir 24 gesti á dag.
Gestir dagþjálfana eru á breiðu aldursbili og er það breytilegt hversu oft í viku þeir koma í dagþjálfun. Sumir koma alla virka daga en aðrir sjaldnar.
Til að komast að í dagþjálfun þarf að liggja fyrir greining um heilabilunarsjúkdóm og að læknir viðkomandi hafi sent inn beiðni þar um.
Dagþjálfun felur í sér bæði andlega og líkamlega örvun sem hefur jákvæð áhrif á getu og líðan þeirra sem sækja deildina. Flestir dagþjálfunargestir eru fljótir að finna ánægju og öryggi á staðnum enda er lögð áhersla á að skapa þar heimilislegt andrúmsloft. Viðfangsefnin eru fjölbreytt og sniðin að getu og áhugasviði gesta.
– Sími deildarstjóra: 522 5730/ 860 7488
– Netfang deildarstjóra: dagdeild@eir.webdev.is
– Sími á Dagdeild Eirar: 522 5738
– Netfang: eirdagdeild@eir.webdev.is
– Sími í Borgaseli: 555 1221
– Netfang: borgasel@eir.webdev.is
Eirarhús – öryggisíbúðir, Grafarvogi
Í Eirarhúsum – öryggisíbúðum, Hlíðarhúsum 3 – 5, 112 Reykjavík eru 37 íbúðir.
Heimaþjónusta er veitt frá Eir. Innangengt er frá öryggisíbúðum með tengigangi yfir í Eir hjúkrunarheimili.
Íbúar Eirarhúsa geta nýtt sér ýmsa þjónustu á Eir til dæmis sjúkraþjálfun, hárgreiðslu, þjónusta fótaaðgerðafræðings og snyrtifræðings auk skemmtana og viðburða. Guðsþjónustur eru haldnar á torginu í A-húsi að jafnaði einu sinni í mánuði. Íbúar Eirarhúsa geta keypt hádegis- og kvöldverð alla daga vikunnar.
– Vaktsími: 522 5791
– Sími deildarstjóra: 860 7400
– Netfang: aase@eir.webdev.is
Eirhamrar – öryggisíbúðir, Mosfellsbæ
Í Eirhömrum, Hlaðhömrum 2, 270 Mosfellsbæ eru 54 íbúðir.
Félagsleg heimaþjónusta er veitt í umboði Félagsmálaráðs Mosfellsbæjar en heimahjúkrun er veitt frá Eir í umboði Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins.
Í Eirhömrum er m.a. hárgreiðslustofa og snyrtistofa sem íbúar Eirhamra geta nýtt sér. Fjölþætt félagsstarfssemi er einnig í húsinu.
Íbúar geta keypt hádegis- og kvöldverð ásamt því að fá heimsendan mat.
– Vaktsímar heimahjúkrunar: 564 0860, 860 7489
– Sími deildarstjóra hjúkrunar: 897 7054
– Netfang: helga@eir.webdev.is
– Sími félagslegrar heimaþjónustu: 566 8060
– Sími verkefnastjóra heimaþjónustu: 897 9561
– Netfang: sigurlaug@eir.webdev.is
Eirborgir – öryggisíbúðir, Grafarvogi
Í Eirborgum, Fróðengi 1 – 11, 112 Reykjavík eru 112 íbúðir. Innangegnt er fyrir íbúa í menningar- og þjónustumiðstöð Reykjavíkurborgar, Borgir.
Eir sér um heimahjúkrun og félagslega heimaþjónustu við íbúa í umboði Velferðarsviðs Reykjavíkurborgar. Fyrstu íbúar fluttu inn í desember 2009.
– Vaktsími: 860 7492
– Sími deildarstjóra: 560 1091
– Netföng: eirborgir@eir.webdev.is