Læknisþjónusta

Læknisþjónusta

Læknisþjónusta í Skjóli er veitt af sérfræðingum í öldrunarlækningum eða heimilislækningum. Hver heimilismaður hefur sinn deildarlækni.

Í Skjóli er veitt læknisþjónusta alla daga ársins. Þjónustan er veitt með fastri vikulegri heimsókn deildarlæknis og styttri heimsóknum annarra lækna heimilisins virka daga, vaktlækna aðra daga ársins með heimsóknum og bakvöktum. Vaktþjónusta er rekin allan sólarhringinn í tengslum við hjúkrunarheimilin Eir og Hamra.

Á hverri deild er haldinn vikulegur fundur með hjúkrunarfólki og öðrum aðilum eftir atvikum þar sem lögð er áhersla á sameiginlega lausn á vanda heimilisfólksins. Þá eru haldnir fjölskyldufundir með heimilismönnum og aðstandendum þeirra á fyrstu mánuðum dvalar og síðan endurtekið eftir aðstæðum og þörfum.

Við breytingu á líðan íbúa er meginstefnan að meðhöndla veikindi á heimilinu og líkna og hjúkra heimilismönnum innan veggja þess.

Læknar ráðleggja meðferð í samráði við sjúkling og/eða aðstandendur hans. Með hliðsjón af læknisfræðilegu mati, vilja og óskum einstaklingsins er leitast við að veita læknisþjónustu sem er sniðin að þörfum hans og miðar að bættri heilsu og góðri líðan. Læknar heimilisins beina íbúum í sjúkraþjálfun og iðjuþjálfun í ljósi heilsufars þeirra.

Tannlæknir kemur reglulega á heimilið.

Framkvæmdastjóri lækninga er Ólafur Helgi Samúelsson.

Læknar einstakra heimilisdeilda:

  • 3 hæð: Haraldur Dungal/ Jón Bjarnarson, Þorkell Elí Guðmundsson
  • 4. hæð: Sigurbjörn Björnsson, Haraldur Dungal/ Jón Bjarnarson
  • 5. hæð: Björn Gunnlaugsson, Þorkell Elí Guðmundsson
  • 6. hæð: Sigurbjörn Björnsson
  • Laugaskjól: Sigurbjörn Björnsson

Heilbrigðisgagnafræðingur er Sigríður Björk Sigurðardóttir.

Deila

Meira

Geta eytt meiri tíma með íbúum

Hjúkr­un­ar­heim­il­in Eir, Skjól og Hamr­ar hafa und­ir­ritað samn­ing við heil­brigðis­tæknifyr­ir­tækið Hel­ix um inn­leiðingu á lausn­un­um Iðunni og Lyfja­vaka. Í frétta­til­kynn­ingu seg­ir að lausn­irn­ar muni bæta