Vistmenn í Laugaskjóli fóru í dagsferð um Hvalfjörð miðvikudaginn 17. ágúst. Fyrst var farið að Hlöðum þar sem er herminjasafn. Var tekið vel á móti okkur.
Við snæddum hádegisverð og skoðuðum safnið.
Svo var ekið fyrir Hvalfjörðinn og næst stoppað við sumarhús í Kjósinni. Kaffisopi og meðlæti var sporðrennt á pallinum í sólskini og 20° hita.