Search

Nýjar heimsóknarreglur

Kæru aðstandendur

Nú hafa lang flestir íbúa Skjóls verið bólusettir tvisvar gegn COVID-19 og því tímabært að rýmka þær takmarkanir sem hafa verið á heimilinu.

Hafa verður í huga að starfsmenn hafa ekki verið bólusettir, sumir íbúanna hafa ekki haft möguleika á bólusetningu og að nýir íbúar eru að öllum líkindum ekki búnir að fá tilboð um bólusetningu. Það hefur áhrif á afléttingu takmarkana ásamt samkomutakmörkunum sem eru úti í samfélaginu hverju sinni. Mikilvægt er að vera á verði vegna hinna ýmsu afbrigða veirunnar sem skjóta upp kollinum og ekki ljóst hvaða áhrif bólusetning hefur á.

Við þurfum því áfram að fara varlega og gæta hvers annars.

Frá og með föstudeginum 29. janúar 2021 gilda þessar reglur:

  • Heimilið verður opið fyrir heimsóknir frá kl. 15:00-18:00 alla virka daga.
  • Heimilið verður opið fyrir heimsóknir um helgar frá kl. 13:00-18:00.
  • Ekki verða tímamörk á heimsóknum innan heimsóknartímans.
  • Heimsóknir fara fram í vistarverum íbúans.
  • Ekki verður takmarkaður fjöldi gesta – gestir eru þó beðnir að gæta hófsemi, sér í lagi þar sem um ræðir fjölbýli.
  • Áfram þarf að skrásetja komu sína í gestabók í hvert sinn.
  • Gestur notar viðurkennda grímu að heiman. Ekki er leyfilegt að bera margnota grímu.
  • Gestir eru beðnir að gæta að 2. metra reglunni og forðast beina snertingu við íbúa og starfsmenn.
  • Gestir eru beðnir um að spritta hendur sínar í upphafi heimsóknar og fyrir og eftir snertingu við sameiginlega fleti, s.s. lyftuhnappa, hurðarhúna, handrið o.fl.
  • Gestir fara stystu leið beint inn á herbergi íbúans og stystu leið út.
  • Óheimilt er að dvelja í sameiginlegum rýmum heimilisins.
  • Heimilt er að fara í bíltúra með íbúa og/eða heimsóknir. Íbúar fara að sjálfsögðu eftir almennum sóttvörnum sem gilda í samfélaginu og eru auk þess beðnir um að gæta sérstaklega vel að handhreinsun við komuna til baka á heimilið vegna möguleika á snertismiti og eru ættingjar beðnir um að minna ástvini sína á handþvott og aðstoða.
  • Óskað er eftir því að gestir og ástvinir fari varlega úti í samfélaginu og fara í sýnatöku við minnstu einkenni.

Sem fyrr er mikilvægt að hafa í huga að gestir mega ekki koma í heimsókn ef þeir:

  • eru í sóttkví.
  • eru í einangrun (einnig meðan beðið er niðurstöðu úr sýnatöku).
  • hafa dvalið erlendis og ekki liggja fyrir neikvæðar niðurstöður úr tveimur skimunum.
  • hafa verið í einangrun vegna COVID-19 smits og ekki eru liðnir 14 dagar frá útskrift.
  • eru með einkenni (kvef, hósta, hita, höfuðverk, beinverki, þreytu, kviðverki, niðurgang o.fl.).

Starfsmenn munu áfram bera grímu við vinnu sína og þurfa að gæta sérstakrar varúðar sín á milli. Áfram verða ákveðin sóttvarnarhólf og gætt verður að handhreinsun og sótthreinsun á sameiginlegum snertiflötum líkt og gert hefur verið allan faraldurinn.

Aðstandendur eru hvattir til að hlaða niður smitrakningarappi Almannavarna.

Aðstandendur eru einnig hvattir til að þiggja bólusetningu gegn COVID-19 þegar þeim býðst hún.

Með öllum góðum óskum!

Deila

Meira

Geta eytt meiri tíma með íbúum

Hjúkr­un­ar­heim­il­in Eir, Skjól og Hamr­ar hafa und­ir­ritað samn­ing við heil­brigðis­tæknifyr­ir­tækið Hel­ix um inn­leiðingu á lausn­un­um Iðunni og Lyfja­vaka. Í frétta­til­kynn­ingu seg­ir að lausn­irn­ar muni bæta

EIR endurhæfing

Á Eir hefur verið starfandi brota-endurhæfingardeild fyrir aldraða um langt skeið með góðum árangri. Svo góðum árangri reyndar að haustið 2022 stækkuðum við deildina um