Search

Óbreyttar heimsóknarreglur

Vegna fjölda fyrirspurna er rétt að taka fram að reglur um heimsóknir á Skjóli eru óbreyttar. Hver íbúi getur fengið tvær heimsóknir á viku, eina klukkustund í senn, náins aðstandanda.

Heimsóknir eru skipulagðar í samráði við hverja deild fyrir sig til að fyrirbyggja margmenni og nauðsynlegt er að hafa samband við deildina áður en komið er í heimsókn. Heimsóknargestir fara beina leið inn og beina leið út að heimsókn lokinni.

Munið grímunotkun og mikilvægi handþvottar, sem aldrei verður of oft ítrekaður. Covid19 þolir ekki sápu og spritt. Þess er enn fremur óskað að heimsóknargestir gæti að sér utan Skjóls.

Við bráð eða alvarleg veikindi íbúa eru heimsóknir skipulagðar í hverju tilfelli fyrir sig.

Deila

Meira

Gjöf frá Kvenfélaginu í Kjós

Þriðjudaginn 29. apríl komu konur úr Kvenfélaginu í Kjós færandi hendi á Eir og Hamrar. Þær gáfu göngubretti í sjúkraþjálfunina á Eir og æfingahjól í

Gjöf til endurhæfingar Eirar

Við hjá Eir endurhæfingu fengum á dögunum afhenta þessa fallegu gjöf frá Gunnþóri Þ. Ingasyni. Með gjöfinni vildi hann koma á framfæri þakklæti fyrir frábæra