Search

Öllum heimsóknartakmörkunum vegna COVID-19 hefur verið aflétt!

  • Gestir eru beðnir um að gæta að 2ja metra reglunni
  • Gestir eru beðnir um að spritta hendur sínar í upphafi heimsóknar og fyrir og eftir snertingu við sameiginlega fleti, s.s. lyftuhnappa, hurðarhúna, handrið o.fl..
  • Gestir eru beðnir um að gæta hófsemi, sér í lagi þegar um ræðir tvíbýli.
  • Að sjálfsögðu er heimilt að bjóða ástvinum út, í bíltúra og/eða heimsóknir. Gæta þarf að fjöldatakmörkum samfélagsins.
  • Grímuskylda gesta hefur verið aflétt – óbólusettir gestir eru þó hvattir til að nota áfram grímur, sér í lagi á sameiginlegum svæðum.
  • Þeir starfsmenn sem hafa ekki þegið eða ekki getað fengið bólusetningu munu áfram nota grímu við vinnu sína á heimilinu enda starf sem krefst mikillar nándar við íbúa og samstarfsfólk.
  • Líkt og áður, biðlum við til gesta að koma ekki í heimsókn hafi þeir einhver einkenni og/eða eru í sóttkví eða einangrun.

Þrátt fyrir þetta þurfum við áfram að viðhalda góðum sóttvörnum – sinna vönduðum handþvotti og þrifum ásamt því að sótthreinsa snertifleti reglulega.   Við – og þið!

Deila

Meira

Gjöf til endurhæfingar Eirar

Við hjá Eir endurhæfingu fengum á dögunum afhenta þessa fallegu gjöf frá Gunnþóri Þ. Ingasyni. Með gjöfinni vildi hann koma á framfæri þakklæti fyrir frábæra