Search

Orðsending til ættingja 20.03.2020

Starfsfólk Eirar, Skjóls og Hamra þakka enn og aftur fyrir stuðninginn og skilninginn á þessum erfiðu tímum.

Á Eir, Skjóli og Hömrum höfum við náð að halda Covid-19 frá okkur og munum því enn viðhafa heimsóknarbann.

Sjúkra- og iðjuþjálfun hefur farið fram á deildum og höfum við reynt að hafa fleiri samverustundir á hverri einingu.

Keyptar hafa verið spjaldtölvur (Ipadar) á hverja einingu og eru deildarstjórar að vinna í því að setja þá upp.  Þannig verður hægt að notast við facetime, skype og messenger til samskipta við sína nánustu.

Hvetjum við ykkur til að nýta þennan möguleika eins og kostur er. Nánari upplýsingar gefa deildarstjórar.

Ættingjar hafa verið að koma með sendingar til heimilismanna og gleður það okkar fólk mikið.  Starfsfólk hefur komið í anddyri heimilanna og tekið á  móti sendingum. Hefur þetta gengið vel og munum við hafa þetta fyrirkomulag áfram nema annað verði ákveðið.  

Deila

Meira

Gjöf frá Kvenfélaginu í Kjós

Þriðjudaginn 29. apríl komu konur úr Kvenfélaginu í Kjós færandi hendi á Eir og Hamrar. Þær gáfu göngubretti í sjúkraþjálfunina á Eir og æfingahjól í

Gjöf til endurhæfingar Eirar

Við hjá Eir endurhæfingu fengum á dögunum afhenta þessa fallegu gjöf frá Gunnþóri Þ. Ingasyni. Með gjöfinni vildi hann koma á framfæri þakklæti fyrir frábæra