Search

Orðsending til ættingja – nýtt verklag

Við viljum byrja á að þakka ykkur öllum fyrir þolinmæði, skilning og jákvæð viðbrögð við lokuninni hjá okkur hérna á Eir, Skjóli og Hömrum.

Hér innanhús gengur allt vel, hingað til hefur félagsstarf verið virkt og fólkið okkar farið í samveru, iðju- og sjúkraþjálfun. Einnig hafa heimilismenn getað fari í hárgreiðslu og til  fótaaðgeraðarfræðings.

Frá og með mánudeginum 16. mars mun öll stoðþjónusta og önnur starfsemi fara fram á deildum. Er þetta liður í því að minnka líkur á smiti.

Á heimilunum er sýklavarnateymi sem fer reglulega yfir stöðu mála og fylgist með, við erum að reyna að bestu getu að halda Covid-19 í fjarlægð frá okkur.

Ef spurningar vakna biðjum við ykkur að hafa samband, æskilegast er að fá tölvupósta þar sem mikið álag er á símakerfinu þessa dagana.

Stjórnendur hjúkrunarheimilanna

Deila

Meira

Öflugur hópur nýliða mættur til leiks!

Nýverið stóðu hjúkrunarheimilin okkar Eir, Skjól og Hamrar fyrir árlegri nýliðafræðslu. Yfir 50 nýir starfsmenn komu saman til að kynna sér helstu grundvallaratriði í umönnun