Search

Takmarkanir á heimsóknum – 29. júlí 2020

Kæru starfsmenn og aðstandendur,

Í ljósi þess að COVID-19 smitum hefur fjölgað í þjóðfélaginu teljum við nauðsynlegt að bregðast við til að vernda íbúa heimilanna líkt og Landlæknir hvatti hjúkrunarheimili til að gera á fundi Almannavarna í gær 28. Júlí. Ákveðið hefur verið að takmarka þann fjölda sem kemur inn á heimilin á hverjum tíma á þann hátt að aðeins mega tveir aðstandendur heimsækja hvern íbúa og helst ekki börn undir 14 ára aldri. 

Heimsóknarreglur:

  • Aðeins tveir aðstandendur mega heimsækja hvern íbúa hverju sinni. Biðlað er til aðstandenda að skipuleggja heimsóknir sín á milli svo ástvinur þeirra fái ekki fleiri en eina heimsókn daglega.
  • Heimsóknargestir eru beðnir um að gæta ítrasta hreinlætis og spritta hendur sínar í upphafi heimsóknar og í hvert sinn sem hann þarf að snerta sameiginlega fleti.
  • Heimsóknargestir fara stystu leið beint inn á herbergi íbúans eins og kostur er.
  • Vinsamlegast virðið 2ja metra regluna
  • Að lokum eru heimsóknargestir beðnir um að fara stystu leiðina út og snerta sem minnst sameiginlega snertifleti.

**ATHUGIÐ að sem fyrr mega gestir ekki koma í heimsókn ef þeir;
a. eru í sóttkví
b. eru í einangrun (einnig meðan beðið er niðurstöðu úr sýnatöku)
c. hafa verið í einangrun vegna COVID-19 smits og ekki eru liðnir 14 dagar frá útskrift
d. eru með einkenni (kvef, hósta, hita, höfuðverk, beinverki, þreytu, kviðverki, niðurgang o.fl.).

**ATHUGIÐ: Þessar reglur verða endurskoðaðar eftir þörfum og eru því birtar með fyrirvara um breytingar.

 

Með kærri kveðju,
Sýkingavarnateymi Eirar, Skjóls og Hamra

Deila

Meira

Geta eytt meiri tíma með íbúum

Hjúkr­un­ar­heim­il­in Eir, Skjól og Hamr­ar hafa und­ir­ritað samn­ing við heil­brigðis­tæknifyr­ir­tækið Hel­ix um inn­leiðingu á lausn­un­um Iðunni og Lyfja­vaka. Í frétta­til­kynn­ingu seg­ir að lausn­irn­ar muni bæta

EIR endurhæfing

Á Eir hefur verið starfandi brota-endurhæfingardeild fyrir aldraða um langt skeið með góðum árangri. Svo góðum árangri reyndar að haustið 2022 stækkuðum við deildina um