Takmarkanir á heimsóknum – uppfærðar leiðbeiningar

25. september 2020

Upp er komin sú staða að við erum með einn íbúa á 2 hæð Suður í A-húsi Eirar sem hefur greinst jákvæður með Covid-19. Brugðist hefur verið við af festu, viðkomandi er kominn í einangrun og er ekki með nein covid einkenni enn sem komið er og líðanin eftir atvikum góð.

Til að gæta fyllsta öryggis er öll deildin, 2. hæð Eirar A-húsi lokuð fyrir heimsóknum á meðan á einangrun og sóttkví stendur. 

Annars gilda neðan greindar reglur áfram fyrir aðrar deildir heimilanna:

Frá og með 21.september verður húsið læst og boða þarf komu sína til vakthafandi hjúkrunarfræðings eða deildarstjóra á viðkomandi deild. Gestir eru beðnir um að bera viðurkennda grímu og spritta hendur eftir snertingu við sameiginlega fleti s.s. lyftuhnappa, hurðarhúna, handrið o.þ.h. 

  • Heimsóknartími er á milli 15:00 og 18:00 á hverjum degi
  • Aðeins einn aðstandandi má heimsækja hvern íbúa, í klukkutíma í senn á degi hverjum.  
  • Áfram þarf að skrásetja komu sína í hvert sinn
  • Gestir eru beðnir að gæta að 2ja metra reglunni og forðast beina snertingu við íbúa. 
  • Heimsóknargestir NOTA grímu og eru beðnir að gæta ítrasta hreinlætis og spritta hendur sínar í upphafi heimsóknar og í hvert sinn sem hann þarf að snerta sameiginlega fleti.
  • Heimsóknagestir fara stystu leið beint inn á herbergi íbúans eins og kostur er og stystu leiðina út.
  • Stranglega bannað er að dvelja í sameiginlegum rýmum heimilisins.
  • Undir sérstökum kringumstæðum er hægt að veita undanþágu frá þessum reglum og er það deildarstjóri eða hjúkrunarfræðingur á vaktinni sem tekur slíkar ákvarðanir

Íbúi getur farið út af heimilinu til að sinna brýnum erindum, s.s. læknisheimsóknir og því um líku. Mælst er til þess að íbúar fari ekki á hópfagnaði og forðist með öllu verslunarferðir og heimsóknir meðan þessi þriðja bylgja gengur yfir.

Aðstandendur eru hvattir til að hlaða niður smitrakningarappi almannavarna.

Deila

Meira

Geta eytt meiri tíma með íbúum

Hjúkr­un­ar­heim­il­in Eir, Skjól og Hamr­ar hafa und­ir­ritað samn­ing við heil­brigðis­tæknifyr­ir­tækið Hel­ix um inn­leiðingu á lausn­un­um Iðunni og Lyfja­vaka. Í frétta­til­kynn­ingu seg­ir að lausn­irn­ar muni bæta