Takmarkanir á heimsóknum – uppfærðar leiðbeiningar

6. október 2020

Kæru aðstandendur,

Vegna aukningu smita í samfélaginu og í ljósi þess að lýst hefur verið neyðarstigi Almannavarna á Íslandi næstu tvær vikurnar verðum við, tímabundið, að grípa til enn harðari ráðstafanna til að vernda íbúa.

Húsið verður áfram læst og boða þarf komu sína til vakthafandi hjúkrunarfræðings eða deildarstjóra á viðkomandi deild. Gestir eru beðnir um að bera viðurkennda grímu og spritta hendur eftir snertingu við sameiginlega fleti s.s. lyftuhnappa, hurðarhúna, handrið o.þ.h. 

  • Heimsóknartími er á milli 15:00 og 18:00 á hverjum degi.
  • Aðeins einn gestur má heimsækja hvern íbúa, tvisvar í viku í klukkutíma í senn
  • Óskað er eftir því að það sé alltaf sami gestur og sá hinn sami sé nánast í sjálfskipaðri sóttkví
  • Gestur notar viðurkennda grímu. Ekki er leyfilegt að bera margnota grímu.
  • Biðlað er til einstaklinga á aldrinum 18-29 ára að koma ekki í heimsókn, vegna vaxandi fjölda smita í þeim aldurshópi – og mildra sem engra einkenna.
  • Áfram þarf að skrásetja komu sína í hvert sinn
  • Gestir eru beðnir að gæta að 2ja metra reglunni og forðast beina snertingu við íbúa.
  • Heimsóknargestir eru beðnir að gæta ítrasta hreinlætis og spritta hendur sínar í upphafi heimsóknar og í hvert sinn sem hann þarf að snerta sameiginlega fleti.
  • Heimsóknagestir fara stystu leið beint inn á herbergi íbúans eins og kostur er.
  • Heimsóknargestir fara stystu leiðina út og snerta sem minnst sameiginlega snertifleti.
  • Stranglega bannað er að dvelja í sameiginlegum rýmum heimilisins.
  • Undir sérstökum kringumstæðum er hægt að veita undanþágu frá þessum reglum og er það deildarstjóri eða hjúkrunarfræðingur á vaktinni sem tekur slíkar ákvarðanir

Næstu tvær vikurnar getur íbúi einungis farið út af heimilinu til að sinna áríðandi erindum, s.s. læknisheimsóknum – ekki bílferðum, heimsóknum eða verslunarferðum.

Aðstandendur eru hvattir til að hlaða niður smitrakningar appi almannavarna.

Deila

Meira

Geta eytt meiri tíma með íbúum

Hjúkr­un­ar­heim­il­in Eir, Skjól og Hamr­ar hafa und­ir­ritað samn­ing við heil­brigðis­tæknifyr­ir­tækið Hel­ix um inn­leiðingu á lausn­un­um Iðunni og Lyfja­vaka. Í frétta­til­kynn­ingu seg­ir að lausn­irn­ar muni bæta

EIR endurhæfing

Á Eir hefur verið starfandi brota-endurhæfingardeild fyrir aldraða um langt skeið með góðum árangri. Svo góðum árangri reyndar að haustið 2022 stækkuðum við deildina um