Search

Yfir 100 prjónaðir bangsar frá Eir afhentir Slökkvistöðinni á Tunguhálsi

Á Eir hefur lengi verið unnið að fallegu samfélagsverkefni innan starfsemi iðjuþjálfunnar, þar sem prjónaðir bangsar eru ætlaðir börnum sem þurfa á sjúkrabílum að halda. Bangsarnir veita börnum huggun og öryggistilfinningu á erfiðum stundum.

Í gær var haldin hátíðleg samkoma þegar afhentir voru yfir 100 bangsar til Slökkvistöðvarinnar á Tunguhálsi. Verkefnið er hluti af starfi iðjuþjálfunnar á Eir, íbúar hjúkrunarheimilisins, íbúar í öryggisíbúðum og skjólstæðingar endurhæfingar hafa lagt hönd á plóg með prjóni og hlýju handbragði.

Síðan verkefnið hófst árið 2017 hafa alls verið afhentir rúmlega 200 bangsar. Afhendingin í gær var ekki aðeins tákn um samstöðu heldur einnig gleðistund þar sem boðið var upp á kaffi og kleinur – áminning um að litlir hlutir geta haft stór áhrif þegar kemur að því að gleðja aðra.

Deila

Meira

Öflugur hópur nýliða mættur til leiks!

Nýverið stóðu hjúkrunarheimilin okkar Eir, Skjól og Hamrar fyrir árlegri nýliðafræðslu. Yfir 50 nýir starfsmenn komu saman til að kynna sér helstu grundvallaratriði í umönnun