Nú þegar sumarið er á næsta leiti þá er um að gera að nýta sér útiaðstöðuna og mögulega verða einhverjar samverurstundir fluttar út undir bert loft þegar veður leyfir. Hlökkum sannarlega til þess að fá sólina til að skína á okkur.
Páfagaukar
Það er gaman að segja frá því að á vordögum varð fjölgun hjá páfagaukunum á annari hæð hér á Eir. Það fæddust 2 gárungar við mikla kátínu heimilsmanna.
Kaffihúsastemning 5. júní
Ath við verðum með kaffihúsastemningu í salnum á 2. hæð miðvikudaginn 5. júní. Kaffi og vöfflur með sultu og rjóma til sölu. Einnig verða munir frá vinnustofu til sölu. Ítarlegri auglýsing kemur á næstu dögum.
Krakkar úr Laugarnesskóla í heimssókn
Þessa vikuna hafa börn úr Laugarnesskóla komið í heimssókn. Á mánudaginn komu nokkrir drengir og spiluðu við nokkra heimilismenn. Í dag miðvikudaginn 22. maí komu nokkur börn og voru með og hjálpuðu til í vinnustofunni. Á morgun koma nokkrir krakkar á skemmtun í sal og sýna eigin verk í máli...
Gerðubergskórinn
Gerðubergskórinn kom til okkar í heimsókn föstudaginn 10. maí. Allir voru með hatta og gleðin ríkjandi.
Stólaball
Við héldum Stólaball í salnum fimmtudaginn 11. apríl. Mikið fjör og mikill sviti. ;)
Tónleikar á kjarvalsstöðum
Við fórum nokkur á tónleika á Kjarvalsstöðum mánudaginn 8. apríl að hlusta á strengjasveit. Virkilega skemmtilegt og gefandi.
Ný rúm í hús
Keypt voru 38 ný rúm í hús og var mikið um að vera að koma þeim saman og upp á hæðir. Spurning hvort að fólk náist fram úr eftir að sofa í nýju rúmunum. ;)
Öskudagur
Við héldum upp á öskudaginn með höttum á höfði og mikill stæll á fólki. Tekinn var leikþáttur um Rauðhettu og úlfinn. Svo komu félagar úr Raddbandafélagi Reykjavíkur og tóku nokkur lög fyrir okkur. Hér koma nokkrar myndir af deginum.
Hattaball
Hattaball verður haldið á Torginu 1.hæð miðvikudaginn 6.mars kl. 14 - 15. Silfursveiflan leikur gömlu góðu lögin og við lofum góðri stemningu og miklu fjöri.