Í dag 20. júní var starfsfólkinu í húsinu boðið upp á grillaða hamborgara og drykki. Ekki var nú leiðinlegt að sólin lét sjá sig ;)
Nýliðafræðsla
Nýliðafræðsla fyrir Eir, Skjól og Hamra var haldin fimmtudaginn 13.júní. Þar var saman kominn stór hópur af frábæru sumarstarfsfólki sem tók virkan þátt í bæði bóklegri og verklegri kennslu. Dagurinn var virkilega skemmtilegur og fræðandi og við erum svo sannarlega heppin með allt þetta flotta starfsfólk sem verður hjá okkur...
Sumar á Hömrum
Sólin síðustu daga hefur verið vel nýtt af íbúum Hamra. Haldin var söngstund úti í garði við mikinn fögnuð íbúa, boðið var uppá Sherrý og konfekt.
Tónskáld í heimsókn
Við vorum svo heppin að fá Jóhönnu Elísu tónskáld, söngkonu og píanóleikara í heimsókn til okkar á Eir. Hún vinnur hjá Reykjavíkurborg í verkefni sem heitir “Skapandi sumarstörf”. Við þökkum henni kærlega fyrir fallega tónlist og óskum henni jafnframt velfarnaðar.
Heimsókn frá Florida
Fimmtudaginn 6. júní fengum við góða heimsókn alla leið frá Flórida. En það voru unglingar, kennarar og fylgdarmenn frá St. Johns gagnfræðaskóla í Florida. Krakkarnir sungu og ein spilaði á þverflautu. Að lokum sungum við 2 íslensk lög fyrir þau ;)
Kaffihúsastemning
Í gær miðvikudaginn 5. júní vorum við með kaffihúsastemningu í salnum þar sem hægt var að kaupa nýbakaða vöfflu með rjóma og sultu ásamt kaffi, setjast niður og eiga huggulega stund. Í vinnustofunni voru munir til sölu sem hafa verið unnir hér af heilmilismönnum s.l vetur. Enn þá eru munir...
Vorganga
Við héldum vorgönguna okkar sem er orðin árleg nú, íð síðustu viku. Við hittumst í anddyrinu og gengum einn hring í kringum húsið. Nokkrir fóru aðeins lengri leið. Þar sem var yndislegt veður í garðinum okkar þá settumst við þar niður að lokinni göngu, fengum okkur sólberjasaft og súkkulaði, spjölluðum...
Hreyfivika UMFÍ á Eir
Hjúkrunarheimilið Eir tók þátt í Hreyfiviku UMFÍ við góðar undirtektir íbúa heimilisins. Hreyfingu var fléttað inn í allt starf í iðjuþjálfun alla vikuna en stærsti dagurinn var þegar hátíðin var haldin í garðinum með börnum úr leikskólanum Bekkuborg. Farið var í stólaleikfimi, sungið, dansað og þeir sem treystu sér rifjuðu...
Nýliðafræðsla
Nýliðafræðsla fyrir sumarstarfsfólk verður haldin þann 13.júní í Borgum. Hlakkar okkur til að taka á móti öllu þessu flotta sumarstarfsfólki sem við erum svo heppin að fá til okkar.
Sumarið er að bresta á! :)
Nú þegar sumarið er á næsta leiti þá er um að gera að nýta sér útiaðstöðuna og mögulega verða einhverjar samverurstundir fluttar út undir bert loft þegar veður leyfir. Hlökkum sannarlega til þess að fá sólina til að skína á okkur.