Nemendur úr NordMaG námi við Háskóla Íslands komu í heimsókn til að kynna sér starfsemina á Eir. En NordMaG er þverfaglegt nám sem fer fram í þremur löndum: Svíðþjóð, Noregi og Íslandi. Markmiðið með náminu er að dýpka þekkingu nemenda á málefnum aldraðra og kynna þeim svið öldrunarfræða. Þetta er...
Blómleg gjöf.
Eir hjúkrunarheimili bárust þessar fallegu blómaskreytingar í dag á kuldalegum þriðjudegi. Er þetta gjöf frá brúðhjónum sem giftu sig um liðna helgi og vildu leyfa íbúum og starfsfólki að njóta þeirra. Blómabúðin, Í húsi blóma, staðsett í Spönginni útbjó þessar skreytingar og færði okkur frá hjónunum nýgiftu.
Tónleikar á Torginu.
Haukur Guðlaugsson píanóleikari og Gunnar Kvaran sellóleikari heiðruðu íbúa, starfsmenn og aðra gesti Eirar með nærveru sinni í dag. 130 manns mættu á tónleikana og má segja að það hafi verið fullt út að dyrum.
Pulsupartý
Á góðum degi í vikunni var ákveðið að grilla fyrir starfsmenn. Dagurinn heppnaðist einstaklega vel í brakandi blíðu.
Söngstund í salnum
Við hittumst í salnum í dag 23. ágúst og sungum saman undir undirspils Matthíasar Ægissonar. Alltaf gaman að syngja saman í góðum hóp. En við munum hittast saman aftur eftir um 4 vikur þegar viðgerð á stóru lyftunni er lokið.
Ath Viðgerð á stærri lyftunni
Gestir athugið ! Þann 26. ágúst hefst viðgerð á stærri lyftunni og því verður einungis minni lyftan í gangi. Við biðjumst velvirðingar á þeim óþægindum sem það veldur Við hvetjum sem flesta til að nota stigana Verkið stendur yfir í um 4 vikur. Starfsfólk Skjóls
Veisla til heiðurs elsta íslendingsins
Fimmtudaginn 8. ágúst héldum við veislu til heiðurs elsta íslendingsins sem er íbúi hér í húsi. Hún Dóra okkar Ólafsdóttir varð 107 ára í júlí s.l. Við hittumst í sal og hlustuðum á söng Stefáns Helga Stefánssonar. Svo fengum við indælis rjómatertu með kaffinu. Húrra fyrir Dóru!
Sólarsöngstund
Við skelltum okkur út í sólina og sungum saman nokkur sumarlög. Að lokum fengum við okkur ís.
Sumargleði
Það ríkir mikil gleði og eftirvænting á einni heimilisdeild Eirar þessa stundina þar sem skógaþröstur er búinn að gera sér heimili í einu blómakerinu. Það verður mjög spennandi að fylgjast með þessari nýju fjölskyldu vaxa og dafna.
Tónlistarviðburður miðvikudaginn 26. júní kl 13:30
Miðvikudaginn 26. júní kemur ung söngkona til okkar og syngur nokkur lög í boði Reykjavíkurborgar. Allir velkomnir ;)
