Verslun Á Skjóli er starfrækt verslun, Sæluskjól, sem hefur til sölu gosdrykki, sælgæti, snyrtivörur auk gjafavöru. Sæluskjól, sem er staðsett í anddyri Skjóls, er opin virka daga frá kl. 10:00 til 15:00 mánudaga til fimmtudaga og 10:00 til 12:00 á föstudögum.
Eldhús
Eldhús Eldhúsið er staðsett að Hlíðarhúsum 7, 112 Reykjavík og er miðlægt framleiðslueldhús Eirar, Skjóls og Hamra hjúkrunarheimila og öryggisíbúða í Eirarhúsum og Eirhömrum. Boðið er upp á fjölbreyttan og hollan heimilismat í mötuneytum fyrir íbúa hjúkrunarheimilanna, öryggisíbúðanna sem og fyrir starfsmenn og gesti, sbr. útgefna matseðila. Næringarfræðingur veitir ráðgjöf...
Hárgreiðslustofa
Hárgreiðslustofa Hárgreiðslustofa þar sem íbúar geta keypt þjónustu frá fagaðilum. Á hárgreiðslustofunni býðst ýmis þjónusta svo sem hárlagning, hárlitun, permanent og klipping fyrir dömur og herra. Heimilismenn greiða sjálfir fyrir þessa þjónustu. Stofan er opin mánudaga og fimmtudaga en þegar hátíð er framundan er dögum breytt með...
Fótaaðgerðir
Fótaaðgerðarstofa Fótaaðgerðarstofa þar sem íbúar geta keypt þjónustu frá fótaaðgerðafræðingi. Fótaaðgerðafræðingur sérhæfir sig í meðhöndlun fótameina. Eins er boðið upp á persónulega ráðgjöf um fótahirðu, val á skóm, innleggjum, kremurm o.fl. Fótaaðgerðafræðingur er Auðbjörg Garðarsdóttir. Tímapantanir í síma 696 6641.
Iðjuþjálfun og félagsstarf
Iðjuþjálfun og félagsstarf Iðjuþjálfun og félagsstarf á hjúkrunarheimilinu Skjóli hefur það að markmiði að veita íbúum heimilisins tækifæri til þátttöku í þeirri iðju sem hefur þýðingu fyrir þá og veitir þeim lífsfyllingu. Boðið er upp á einstaklingsþjálfun sem og hópaþjálfun þar sem iðja er höfð í forgrunni. Iðjuþjálfar sjá...
Sjúkraþjálfun
Sjúkraþjálfun Sjúkraþjálfunin er staðsett á annarri hæð beint á móti aðalinngangi á Skjóli. Þar er tækjasalur og herbergi með æfingabekkjum, þar sem m.a. er veitt bakstra- og hljóðbylgjumeðferð. Markmið sjúkraþjálfunar er að bæta líðan og lífsgæði íbúa Skjóls með markvissri þjálfun og er séð til þess að sem flestir njóti...
Læknisþjónusta
Læknisþjónusta Læknisþjónusta í Skjóli er veitt af sérfræðingum í öldrunarlækningum eða heimilislækningum. Hver heimilismaður hefur sinn deildarlækni. Í Skjóli er veitt læknisþjónusta alla daga ársins. Þjónustan er veitt með fastri vikulegri heimsókn deildarlæknis og styttri heimsóknum annarra lækna heimilisins virka daga, vaktlækna aðra daga ársins með heimsóknum og bakvöktum. Vaktþjónusta...
Hjúkrunarsvið
Markmið hjúkrunar: Veita persónulega þjónustu á faglegan og ábyrgan hátt. Tryggja vellíðan og öryggi íbúa, standa vörð um sjálfvirðingu og ákvörðunarrétt þeirra. Aðstoða íbúa við að aðlagast breyttum aðstæðum í heimilislegu umhverfi. Viðhalda sjálfsbjargargetu og færni með líkamlegri og andlegri þjálfun. Stuðla að góðu og persónulegu sambandi við ættingja. Hjúkrunaráætlun...
Hjólað um allan heim í september-heimsmeistarakeppnin
Íbúar á Eir hafa nú í september tekið þátt í keppninni Road Worlds for Seniors. Þar hjóla íbúar hjúkrunarheimila í ýmsum löndum af kappi og horfa á myndbönd frá Motiview af hjólaleiðum um allan heim á meðan. Á Eir voru hjólaðir 1017 km og við lentum í 30. sæti af...
Sögustund á Torginu
Það var vel mætt í sögustund hjá Hönnu en hún er að lesa bókina Litróf lísins við góðar undirtektir íbúa heimilisins.