Search

Gleðilegt nýtt ár!

Starfsfólk Skjóls óskar heimilismönnum, aðstandendum og öllum öðrum gleði og gæfu á nýju ári með kærri þökk fyrir samfylgdina og hlýlegt viðmót á liðnu ári. Megi nýja árið reynast ykkur öllum gæfuríkt!

Gleðilegt ár!

Starfsfólk Eirar óskar heimilismönnum, aðstandendum og öllum öðrum gleði og gæfu á nýju ári með kærri þökk fyrir samfylgdina og hlýlegt viðmót á liðnu ári. Megi nýja árið reynast ykkur öllum gæfuríkt!

Gleðilega hátíð!

Við á Eir hjúkrunarheimili sendum öllum heimilismönnum okkar og aðstandendum bestu óskir um gleðilegra jóla. Við vonum að sem flestir njóti þeirra í faðmi fjölskyldu og ástvina.Jólakveðja,Starfsfólk Eirar hjúkrunarheimilis

Þorláksmessudagur eða ,,Hlakkandi“

,,Þótt sjálf jólahátíðin hæfist ekki fyrr en á miðjum aftni á aðfangadag, var undirbúningur hennar á fullu skriði dagana áður. Þá þurfti að ljúka við að þrífa bæinn hátt og lágt, þvo rúmföt og nærföt. Þá voru og seinustu forvöð að steypa jólakertin. Alsiða var að sjóða jólahangiketið á Þorláksmessu...

Smákökubakstur

Nú er smákökubakstrinum á Eir lokið þessa aðventuna. Greinilegt að vanar hendur komu að verkinu og ekki var lengi gert að útbúa þessar ljómandi góðu engiferkökur, pensla þær og sáldra með alskyns góðgæti. Iðjuþjálfar deildanna hafa einnig farið á milli og bakað með íbúum sem ekki koma á vinnustofuna og...

Gerðubergskórinn í heimsókn.

Vinir okkar í Gerðubergskórnum komu í heimsókn og sungu fyrir okkur gömul og góð lög. 120 mannst mættu til að hlíða á kórinn. Íbúar voru ánægðir með tónleikana og klöppuðu kórinn upp í lok dagskrár sem að sjálfsögðu brást við með aukalagi.

Basar og kaffihúsastemning

Við vorum með basar og kaffihúsastemningu miðvikudaginn 20. nóvember. Virkilega vel lukkað. Enn eru munir til sölu og velkomið að kíkja inn á vinnustofu og skoða. Verið velkomin.

Vaxandi vinsældir í samlestri á Torginu

Samlesturinn á miðvikudögum er að vaxa í vinsældum hjá íbúum Eirar. Hanna starfsmaður iðjuþjálfunar og félagsstarfs er að lesa bókina Halla og Heiðarbýlið eftir Jón Trausta .

Samstarf við Laugarnesskóla

Við í iðjuþjálfun og félagstarfinu erum komin í samstarf við Laugarnesskóla. En krakkar úr 5. bekk koma í heimsókn í litlum hópum alla mánudaga, þegar skóli er , í vetur að auki fáum við börn úr skólakórnum til að syngja fyrir okkur Þetta samstarf er mjög gefandi fyrir heimilismenn, nemendur og starfsfólk....