3. febrúar fóru nokkrir heimilismenn á Kjarvalsstaði að hlýða á söng Hildigunnar Einarsddóttur og píanóleikarans Guðrúnar Dahlíu Salomonsdóttur
Þorragleði
Við héldum Þorragleði með pompi og prakt 6. febrúar s.l. Hjördís Geirsdóttir kom ásamt tveimur stöllum og héldu þær uppi fjörinu. Á eftir var boðið upp á súra punga, - sviðasultu og hákarl. Þessu var hægt að renna niður með íslensku brennivíni, sérríi og svo auðvitað íslensku vatni.
Workplace
Það hefur verið tekin ákvörðun um að innleiða Workplace á Eir, Skjól og Hömrum sem mun þjóna hlutverki innri-vefs stofnunarinnar. Hér er smá örkynning á Workplace til að gera skil á notagildi þess og eiginleikum: Hvað er Workplace?Workplace er samskiptamiðill fyrir vinnustaði. Workplace byggir á sömu eiginleikum og viðmóti og...
Fjallkonur, ball og Þorrablót
Glæsilegar fjallkonur settu bóndadaginn og jafnframt þorrann í dag. Torgið var glæsilega skreytt þegar Silfursveiflan steig upp á svið og spilaði á þorraballinu. Dansgólfið var troðfullt af hæfileikaríkum dönsurum og mikil gleði sjáanleg á öllum. Dagurinn í dag var því einstaklega skemmtilegur og þorramaturinn í hádeginu ljúffengur.
Sagði einhver þorramatur?
Á morgun, þann 24. janúar, verður þorramatur á boðstólnum. Við hvetjum aðstandendur til að koma og borða með okkur. Kær kveðja, Skjól hjúkrunarheimili
Þorrinn hefst á morgun
Þorrinn hefst á morgun (24.01.20) og ekki má gleyma bóndadeginum. Þessu er fagnað með dýrindisveislu í hádeginu á morgun. Á boðstólnum er hinn sívinsæli þorramatur og hvetjum við aðstandendur til að kíkja í heimsókn og borða með okkur.
Iðjuþálfunin komin á Youtube
Iðjuþjálfun og félagsstarf Eirar hefur safnað saman ýmsu efni sem íbúar heimilisins gætu haft gaman að á Youtube undir nafninu Eir iðjuþjálfun. Þetta efni hefur skapað góðar samræður og skemmtilegar samverustundir á deildunum. Þetta eru til dæmis gamlir og nýir íslenskir heimildaþættir, tónlistaþættir, tónleikar, slökunartónlist og margt fleira. Hér fyrir...
Sungið saman 2. janúar 2020
Í síðustu viku var góð mæting í fyrsta samsöng ársins. Undirtektirnar voru miklar og vonandi setur þessi mæting tóninn fyrir komandi viðburði á árinu.
Janúar dagskrá
Desember
Margt var brallað í Félagsstarfi og iðjuþjálfun í desember hér á Skjóli. Við héldum aðventuhátíð þar sem Sr. Sigurður Jónsón hélt smá tölu og Svavar Knútur skemmti okkur með söng og gleði. Kór Laugarnesskóla kom að syngja fyrir okkur. Smákökur voru bakaðar og snæddar með heitu súkkulaði. Á vinnustofu voru...