Við héldum vorgönguna okkar sem er orðin árleg nú, íð síðustu viku. Við hittumst í anddyrinu og gengum einn hring í kringum húsið. Nokkrir fóru aðeins lengri leið. Þar sem var yndislegt veður í garðinum okkar þá settumst við þar niður að lokinni göngu, fengum okkur sólberjasaft og súkkulaði, spjölluðum...
Kaffihúsastemning 5. júní
Ath við verðum með kaffihúsastemningu í salnum á 2. hæð miðvikudaginn 5. júní. Kaffi og vöfflur með sultu og rjóma til sölu. Einnig verða munir frá vinnustofu til sölu. Ítarlegri auglýsing kemur á næstu dögum.
Krakkar úr Laugarnesskóla í heimssókn
Þessa vikuna hafa börn úr Laugarnesskóla komið í heimssókn. Á mánudaginn komu nokkrir drengir og spiluðu við nokkra heimilismenn. Í dag miðvikudaginn 22. maí komu nokkur börn og voru með og hjálpuðu til í vinnustofunni. Á morgun koma nokkrir krakkar á skemmtun í sal og sýna eigin verk í máli...
Gerðubergskórinn
Gerðubergskórinn kom til okkar í heimsókn föstudaginn 10. maí. Allir voru með hatta og gleðin ríkjandi.
Stólaball
Við héldum Stólaball í salnum fimmtudaginn 11. apríl. Mikið fjör og mikill sviti. ;)
Tónleikar á kjarvalsstöðum
Við fórum nokkur á tónleika á Kjarvalsstöðum mánudaginn 8. apríl að hlusta á strengjasveit. Virkilega skemmtilegt og gefandi.
Ný rúm í hús
Keypt voru 38 ný rúm í hús og var mikið um að vera að koma þeim saman og upp á hæðir. Spurning hvort að fólk náist fram úr eftir að sofa í nýju rúmunum. ;)
Öskudagur
Við héldum upp á öskudaginn með höttum á höfði og mikill stæll á fólki. Tekinn var leikþáttur um Rauðhettu og úlfinn. Svo komu félagar úr Raddbandafélagi Reykjavíkur og tóku nokkur lög fyrir okkur. Hér koma nokkrar myndir af deginum.
Þorragleði 6. febrúar
Það verður Þorragleði hér á Skjóli miðvikudaginn 6. febrúar kl 13:30. Hjördís Geirsdóttir heldur uppi fjörinu ásamt harmonikkuleikara. Svo verður líka þorrasmakk.
Janúar
Það er búið að vera nóg að gera núna í janúar í Iðjuþjálfun og félagsstarfinu. Söngur, Dans, bíó, bingó, spurt og svarað og vöfflubakstur á 6. hæð. Einnig hefur verið mikið brallað í vinnustofunni.