Search

Læknisþjónusta

Læknisþjónusta Læknisþjónusta í Skjóli er veitt af sérfræðingum í öldrunarlækningum eða heimilislækningum. Hver heimilismaður hefur sinn deildarlækni. Í Skjóli er veitt læknisþjónusta alla daga ársins. Þjónustan er veitt með fastri vikulegri heimsókn deildarlæknis og styttri heimsóknum annarra lækna heimilisins virka daga, vaktlækna aðra daga ársins með heimsóknum og bakvöktum. Vaktþjónusta...

Hjúkrunarsvið

Markmið hjúkrunar: Veita persónulega þjónustu á faglegan og ábyrgan hátt. Tryggja vellíðan og öryggi íbúa, standa vörð um sjálfvirðingu og ákvörðunarrétt þeirra. Aðstoða íbúa við að aðlagast breyttum aðstæðum í heimilislegu umhverfi. Viðhalda sjálfsbjargargetu og færni með líkamlegri og andlegri þjálfun. Stuðla að góðu og persónulegu sambandi við ættingja. Hjúkrunaráætlun...

Söngstund í salnum

Við hittumst í salnum í dag 23. ágúst og sungum saman undir undirspils Matthíasar Ægissonar. Alltaf gaman að syngja saman í góðum hóp. En við munum hittast saman aftur eftir um 4 vikur þegar viðgerð á stóru lyftunni er lokið.

Ath Viðgerð á stærri lyftunni

Gestir athugið !   Þann 26. ágúst hefst viðgerð á stærri lyftunni og því verður einungis minni  lyftan í gangi.  Við biðjumst velvirðingar á þeim óþægindum sem það veldur Við hvetjum sem flesta til að nota stigana Verkið stendur yfir í um 4 vikur. Starfsfólk Skjóls

Veisla til heiðurs elsta íslendingsins

Fimmtudaginn 8. ágúst héldum við veislu til heiðurs elsta íslendingsins sem er íbúi hér í húsi. Hún Dóra okkar Ólafsdóttir varð 107 ára í júlí s.l. Við hittumst í sal og hlustuðum á söng Stefáns Helga Stefánssonar. Svo fengum við indælis rjómatertu með kaffinu.     Húrra fyrir Dóru!  

Heimsókn frá Florida

Fimmtudaginn 6. júní fengum við góða heimsókn alla leið frá Flórida. En það voru unglingar, kennarar og fylgdarmenn frá St. Johns gagnfræðaskóla í Florida. Krakkarnir sungu og ein spilaði á þverflautu. Að lokum sungum við 2 íslensk lög fyrir þau ;)

Kaffihúsastemning

Í gær miðvikudaginn 5. júní vorum við með kaffihúsastemningu í salnum þar sem hægt var að kaupa nýbakaða vöfflu með rjóma og sultu ásamt kaffi, setjast niður og eiga huggulega stund. Í vinnustofunni voru munir til sölu sem hafa verið unnir hér af heilmilismönnum s.l vetur. Enn þá eru munir...