Search

Gleðilegt nýtt ár!

Starfsfólk Skjóls óskar heimilismönnum, aðstandendum og öllum öðrum gleði og gæfu á nýju ári með kærri þökk fyrir samfylgdina og hlýlegt viðmót á liðnu ári. Megi nýja árið reynast ykkur öllum gæfuríkt!

Basar og kaffihúsastemning

Við vorum með basar og kaffihúsastemningu miðvikudaginn 20. nóvember. Virkilega vel lukkað. Enn eru munir til sölu og velkomið að kíkja inn á vinnustofu og skoða. Verið velkomin.

Samstarf við Laugarnesskóla

Við í iðjuþjálfun og félagstarfinu erum komin í samstarf við Laugarnesskóla. En krakkar úr 5. bekk koma í heimsókn í litlum hópum alla mánudaga, þegar skóli er , í vetur að auki fáum við börn úr skólakórnum til að syngja fyrir okkur Þetta samstarf er mjög gefandi fyrir heimilismenn, nemendur og starfsfólk....

Verslun – Sæluskjól

Verslun   Á Skjóli er starfrækt verslun, Sæluskjól, sem hefur til sölu gosdrykki, sælgæti, snyrtivörur auk gjafavöru.   Sæluskjól, sem er staðsett í anddyri Skjóls, er opin virka daga frá kl. 10:00 til 15:00 mánudaga til fimmtudaga og 10:00 til 12:00 á föstudögum.  

Eldhús

Eldhús Eldhúsið er staðsett að Hlíðarhúsum 7, 112 Reykjavík og er miðlægt framleiðslueldhús Eirar, Skjóls og Hamra hjúkrunarheimila og öryggisíbúða í Eirarhúsum og Eirhömrum. Boðið er upp á fjölbreyttan og hollan heimilismat í mötuneytum fyrir íbúa hjúkrunarheimilanna, öryggisíbúðanna sem og fyrir starfsmenn og gesti, sbr. útgefna matseðila. Næringarfræðingur veitir ráðgjöf...

Hárgreiðslustofa

Hárgreiðslustofa   Hárgreiðslustofa þar sem íbúar geta keypt þjónustu frá fagaðilum.   Á hárgreiðslustofunni býðst ýmis þjónusta svo sem hárlagning, hárlitun, permanent og klipping fyrir dömur og herra. Heimilismenn greiða sjálfir fyrir þessa þjónustu.   Stofan er opin mánudaga og  fimmtudaga en þegar hátíð er framundan er dögum breytt með...

Fótaaðgerðir

Fótaaðgerðarstofa Fótaaðgerðarstofa þar sem íbúar geta keypt þjónustu frá fótaaðgerðafræðingi. Fótaaðgerðafræðingur sérhæfir sig í meðhöndlun fótameina. Eins er boðið upp á persónulega ráðgjöf um fótahirðu, val á skóm, innleggjum, kremurm o.fl. Fótaaðgerðafræðingur er Auðbjörg Garðarsdóttir. Tímapantanir í síma 696 6641.  

Iðjuþjálfun og félagsstarf

Iðjuþjálfun og félagsstarf   Iðjuþjálfun og félagsstarf á hjúkrunarheimilinu Skjóli hefur það að markmiði að veita íbúum heimilisins tækifæri til þátttöku í þeirri iðju sem hefur þýðingu fyrir þá og veitir þeim lífsfyllingu. Boðið er upp á einstaklingsþjálfun sem og hópaþjálfun þar sem iðja er höfð í forgrunni. Iðjuþjálfar sjá...

Sjúkraþjálfun

Sjúkraþjálfun Sjúkraþjálfunin er staðsett á annarri hæð beint á móti aðalinngangi á Skjóli. Þar er tækjasalur og herbergi með æfingabekkjum, þar sem m.a. er veitt bakstra- og hljóðbylgjumeðferð. Markmið sjúkraþjálfunar er að bæta líðan og lífsgæði íbúa Skjóls með markvissri þjálfun og er séð til þess að sem flestir njóti...