Search

Basar

28. nóvember héldum við basar þar sem margir hlutir sem búnir voru til á vinnustofunni á árinu, voru til sölu. Einnig vorum við með kaffihúsastemningu þar sem kaffi og vöfflur voru til sölu. 2 stöllur úr Laugaskjóli sáu um baksturinn.

Spilaklúbbur

Í haust byrjuðum við með spilaklúbb sem og aldeilis gaman að taka í spi,l vist , mann og fleira.

Dagur íslenskrar tungu

Á degi íslenskrar tungu  16. nóvember fengum við góða heimsókn. Svava Knútur kom og tók nokkur lög og las fyrir okkur.

Gefins sjöl

Starfsmenn Íslandsbanka unnu að góðgerðarverkefni og hekluðu sjöl til að gefa ýmsum stofnunum og heimilum. Við fengum nokkur litrík og falleg sjöl að gjöf, sem koma að góðum notum í salnum þegar napurt er úti og kuldinn laumar sér inn fyrir.

Haustdagskrá

Þá er haustið að bresta á eina ferðina enn með til heyrandi vindi og vatni. Fyrir neðan má líta á dagskránna fyrir september ;) [gview file="http://skjol.is/wp-content/uploads/2017/09/sept-2017.docx"]