Við fengum tvö átta ára börn í heimsókn þar sem var frí í skólanum. Þau fóru á allar hæðir og tóku lagið fyrir heimilismenn.
Jólabingó
Fimmtudaginn 21. desember héldum við jólabingó. Allir fengu jólaglaðning.
Danssýning
Miðvikudaginn 20. desember fengum við tvenn pör, 6 og 7 ára, til að dansa fyrir okkur. Virkilega flottir krakkar.
Vöfflubakstur Laugaskjóli
Föstudaginn 15. desember var vöfflubakstur og samvera á Laugaskjóli.
Jólasöngstund með börnunum frá leikskólanum Laugasól
Föstudaginn 15. desember fengum við góða heimsókn elstu barnanna í leikskólanum Laugsól. Við sungum saman og Unnur Brynja las jólaálfasögu. Þau voru 40 samtals og mikil gleði með þeirra heimsókn.
Aðventuhátíð 14. desember
Við héldum aðventuhátíðina okkar 14. desember. Fyrst kom séra Sigurður og hélt smá hugvekju. Svo komu unglingar frá Waldorfskólanum Lækjarbotnum og sungu nokkur lög. Að lokum fengum við hressa krakka úr Laugarnesskóla til að syngja ásamt stjórnanda sínum Hörpu Þorvaldsdóttir.
Bókalestur 13. desember
Halldór Friðrik Þorsteinsson kom og las fyrir okkur úr bók sinni sem kom út fyrir jólin. Virkilega áhugaverðar lýsingar frá ferðalagi um Afríku.
Smákökubakstur 5. og 6. hæð
5. 0g 6, hæð komu saman í smákökubakstur. Í kaffinu fengu allir nýbakaðar smákökur og heitt súkkulaði með rjóma.
Smákökubakstur 3. og 4. hæð
Þriðjudaginn 5. desember kom hópur af 3. og 4. hæð og bökuðu spesíur og negulkökur. Svo fengu allir heitt súkkulaði og smákökur í kaffinu.