Það er búið að lífga upp á ganginn á milli Skjóls og Hrafnistu. Tilvalið að kíkja og staldra við. :)
Afmælismánuður
Í tilefni 30 ára afmælis Skjóls í janúar s.l. þá ætlum við að vera í æfmælisgírnum í maí og bjóða upp á fjölbreytta viðburði. Sjá auglýsingar í lyftu og hæðum. Rúsínan í pylsuendanum verður svo kaffihúsastemning í salnum þann 31. maí, kl 14:45 - 16:30.
Mannaskipti á skrifstofu
[gview file="http://skjol.is/wp-content/uploads/2018/05/RogA.docx"]
Vinnustofa 21. mars
Á miðvikudaginn ríkti vinnuandinn yfir vötnum.
þorri
Það var margt um manninn í iðjuþjálfuninni í vikunni. Fólk gaf sér þó tíma til að fá sér smá þorrarestar og voru allir sammála um að harðfiskur með smjöri svíkur aldrei. Miklar umræður spunnust um þorrann, matarhefðir og söngva á meðan. ? Þessi síðasta er síðan á þorrablótinu.
Skjól 30 ára
Í janúar 1988 var hjúkrunarheimilið Skjól opnað. Fyrst var það 5. hæðin og svo hinar hæðirnar hver af annarri. Nú í janúar, var af því tilefni, boðið upp á rjómatertu og heitt súkkulaði fyrir heimilisfólk og starfsmenn.. Með hækkandi sól ætlum við að halda svo betur upp á afmælið með...
Þorrablót
Við blótuðum saman þorrann og áttum góða stund saman í andyrinu þann 1. febrúar. Lesinn var lýsing á þorra hér áður fyrr. Svo sungum við saman minni karla og kvenna. Miðbæjakvartettinn og kom og söng fyrir okkur ásamt að stjórna samsöng. Að lokum snæddum við hákarl, harðfisk, súra hrústspunga og...
Vöfflukaffi 3. hæð austur
2. febrúar bökuðum við saman vöfflur. Áttum góða stund saman og snæddum saman nýbakaðar vöfflur með þeyttum rjóma og sultu.
Vöfflukaffi 3.h. vestur
Vöfflubakstur á vesturgangi á 3. hæð. Samvinna og gleði
Söngstund
28 desember var samsöngur í sal.