Hér koma nokkrar myndir úr vinnustofunni í ágúst ;)
Sumar og sól
Í sumar nýttum við blíðviðrisdaga til að fara út fyrir, eiga góða stund saman og fá okkur ís ;)
Sumarblóm
Þessar myndir eru síðan sumarblómin voru sett niður.
Þjóðhátíðarskemmtun
Við tókum forskot á þjóðhátíð og héldum skemmtun í salnum 15. júní. Byrjað var á upplestri og fróðleik í tenglsum við lýðveldi Íslands. Svo voru sungin ættjarðar- og sumarlög. Svo kom danspar í heimsókn og tóku nokkra dansa. Þau eru 10 ára gömul og búin að æfa síðan þau voru...
Tónlistarkynning og bíó
7. júní tókum við fyrir Ríó Tríó , kynning í máli, myndum og tónlist. Viku síðar vorum við með heimildarmynd um bandið í bíó.
Vöfflukaffi 6. hæð
Í lok maí vorum við með vöfflukaffi á 6. hæðinni. Fyrst komu leikskólabörn í heimsókn. Hlustuðum saman á ævintýrið umHelgu forvitnu. Svo skelltum við í vöfflubakstur og gleði.
Hattadagur
Á morgun föstudaginn 19. maí verður Hattadagur hjá okkur. Þá brjótum við upp daginn með að klæðast höttum. Gerðubergskórinn kemur kl 13:30 og ætlar skemmta okkur með söng.
Vöfflukaffi 5. hæð vestur
Föstudaginn 12. maí héldum við Vöffluboð á vesturganginum á 5. hæðinni, Gleði, tónlist og góð samvera.
Söngstund með börnum frá leikskólanum Laugasól
Hluti af elstu börnunum, í Laugasól komu og sungu með okkur í söngstund í apríl.
Vöfllubakstur 5. hæð austur
Föstudaginn 21. apríl var samvinna í að hafa vöffluboð á austurganginum á 5. hæð. Margir lögðu hendur til verksins ásamt að hluta á góða tónlist og eiga góða stund saman