Search

Þorrablót 9. febrúar

Við héldum þorrablót með söng, dans og gleði. Auðvitað var þorramatur í smakk ásamt söngolíu og öðrum drykkjum. Gleðin var ríkjandi eins og sést á myndunum.

Bóndadags herragleði

Á Bóndadaginn voru herrarnir í húsinu boðnir velkomnir í gleði í salnum. Þar var í boði harðfiskur, hákarl, brennivín , djús, söngur, upplestur. Að lokum mættu tvær úr tungum og voru með uppistand. 

Vöfflukaffi 6. hæð

Föstudaginn 13. janúar vorum við með vöfflukaffi á 6. hæð. 2 herrar sáu um baksturinn. Tónlist, gleði og grín voru í fyrirrúmi.

Framundan í jólatíðinni

Mikið hefur verið, í boði, í desember, glaumur og gleði. Í næstu viku, miðvikudaginn 21. desember  verður jólegleði með harmonikkuleikaranum Þórði Marteinssyni. Fimmtudaginn 22. desember verður jólabingó. En Bocciað er komið í jólafrí og byrjar aftur á nýju ári. Sjá dagskrá, fyrir janúar  sem kemur síðar.        ...