Search

Jólaskreytingar

13. desember komum við saman í salnum að gera jólaskreytingar. Efniviður var körfur, greni og hýasintur og alls kyns jólaglingur. Vinnugleðin var ríkjandi og hver skreytingin af fætur annarri  stórglæsileg.

Smákökubakstur 5. og 6. hæð

12. desember var smákökubakstur í boði fyrir 5. og 6. hæð. Jólagleðin var ríkjandi við ljúfa jólatónlist og ekki var verra þegar smákökuilmurinn barst vitum. Í kaffinu voru svo smákökur í boði ásamt heitu súkkulaði með rjóma.

Aðventuhátíð

8. desember héldum við aðventuhátíð. Séra Sigurður Jónsson byrjaði hátíðina með góðum orðum og bæn. Næst komu 4 ungar stúlkur úr Skólahljómsveit Austurbæjar ásamt stjórnanda sínum Vilborgu Jónsdóttur, þær spiluðu fyrir okkur nokkur jólalög. Að lokum fengu allir jólaglögg og piparkökur áður en farið var upp.

Smákökubakstur 3. og 4. hæð

Mánudaginn 5. desember var smákökubakstur fyrir 3. og 4. hæð. Við vorum samankomin í salnum og áttum góða stund með jólatónlist í bakgrunni. Mikil vinnugleði ríkti og ekki verra þegar smákökuilmurinn bættist við. Í kaffinu voru svo smákökur og heitt súkkulaði með rjóma í boði.  

1. desember

Við héldum fullveldisdaginn hátíðlegan og buðum til samkomu í salnum. Saga dagsins var rakin. Svo fengum við góðan gest, Sigurbjörn Þorkelsson sem fór með óð til aldraða. Að lokum voru fróðleiksmolar fluttir um jólaföstuna.

Dagur íslenskrar tungu

Við héldum dag íslenskrar tungu hátíðlegan, sem var 16. nóvember. Við fengum góða gesti. Nemendur frá tónlistarskólanum í Reykjavík sem sungu og spiluðu á píanó. Einnig komu ritlistarnemar og lásu fyrir okkur sögur eftir sig. Að lokum lokum las Þórhalla nokkur ljóð.

Vöfflukaffi 5. hæð austurgangur

Mánudaginn 14. nóvember vorum við með vöfflubakstur  og skemmtilegheit. Góð tónlist, spjall og allir að hjálpast að við verkið. Að baka vöfflurnar, þeyta rjóma, setja sultur í skál og leggja á borð.