Search

Eir í heimsókn í handverksklúbbinn

Mánudaginn 31. okt kom góður gestur til okkar i handverksklúbbinn. Þetta er labrador tíkin Eir sem er í eigu sjúkraþjálfarans. Allir voru ánægðir með þessa heimsókn og kemur hún örugglega aftur.

Haustbasar

Við héldum haustbasar í salnum 20. október. Þar sem voru seld handverk eftir íbúa. Vöfflur og kaffi fyrir gesti. 2 kjarnakonur frá Laugaskjóli bökuðu vöfflur. Kaffihúsastemning myndaðist hjá okkur. Mikil ánægja hjá þeim sem komu.

Vöfflukaffi 4. hæð austur

Vöfflubakstur og góð samvera á 4. hæð Austur, mánudaginn 17. október. Kristín Eva og Þorbjörg bökuðu vöfflur. Vilborg hjálpaði að setja á borð. Siðan var snætt saman.

Bleikur dagur

Við héldum upp á bleika daginn hér á Skjóli föstudaginn 14. október. Klæddist starfsfólk og íbúar í bleiku. Einnig voru húsakynnin með bleiku ívafi.

ATH ATH Haustbasar 20. október

  Basarinn hefst kl 15 og stendur til kl 17. Ýmisskonar handverk verður til sölu ásamt kaffi og nýbökuðum vöfflum. ATh ekki er tekið við greiðslukortum.... einungis peningum

Vöfflukaffi á 3. hæð austur

Mánudaginn 26. september var vöfllubakstur á 3. hæðinni, austurgangi. Mikil gleði og ánægja ríkti og lögðu nokkrir hönd á plóg. Til að mynda sáu 2 kjarnorkukonur um baksturinn og höfðu engu gleymt í þeim í efnum þó önnur væri 93 ára og hin 100 ára.

Handaklúbbur

Þessar 2 konur voru að fá hita á hendur og axlir, þegar þessi sæti hundur kom í heimsókn.