Search

Nýtt tæki í sjúkraþjálfun

Skjúkraþjálfun Skjóls var að fá nýtt æfingatæki. Nustep er gott til að bæta hjarta og lungnastarfsemi og almenna færni.  Gott er að komast í það og auðvelt að nota. Í tækinu er hægt að hreyfa handleggi og fætur í rólegum jöfnum takti sem hentar flestum. Við teljum að þetta tæki...

Sól og blíða

Við nutum veðurblíðunnar í dag, úti í porti. Borðuðum ís, spjölluðum og hlustuðum á góða tónlist.

Laugaskjól í dagsferð

Vistmenn í Laugaskjóli fóru í dagsferð um Hvalfjörð miðvikudaginn 17. ágúst. Fyrst var farið að Hlöðum þar sem er herminjasafn. Var tekið vel á móti okkur. Við snæddum hádegisverð og skoðuðum safnið. Svo var ekið fyrir Hvalfjörðinn og næst stoppað við sumarhús í Kjósinni.  Kaffisopi og meðlæti var sporðrennt á...

Reykjavík 230 ára

Föstudagur 19. ágúst Í tilefni af afmæli Reykjavikur þann 18. vorum við með kynningu í máli og myndum af uppbyggingu Reykjavíkur.

Töðugjöld

Fimmtudaginn 18. ágúst vorum við með töðugjöld í andyrinu. Í boði voru nýuppteknar kartöflur úr garðinum ásamt graslaukssmjöri. Þessu var skolað niður með mintutei. Þórður Marteinsson hélt uppi fjörinu með harmonikkutónlist. Það var sungið og dansað.

Síldarævintýri

Föstudaginn 29. júlí. hittumst við í salnum og þar fór fram lestur og upprifjun á síldarævintýri landans. Í máli, myndum og myndbandsbrotum. Einnig var hlustað á tónlist tengda hafinu og sungið aðeins. Áttum góða stund saman

íssamvera

Miðvikudaginn 27. júlí nutum við veðurblíðunnar í garðinum. Fengum okkur ís og sungum saman.

Grillveisla starfsmanna

Miðvikudaginn 20. júlí var grillveisla úti í porti fyrir starfsmenn í húsinu. Sól, tónlist og gleði í hjarta var ríkjandi eins og myndir sýna.

Söngstund í góða veðrinu

Þann 7. júlí höfðum við söngstundina, sem annars hefði verið inni í sal, úti við. En það  viðraði svo  vel þennan dag. Daginn áður hittumst við einnig úti og snæddum íspinna og sungum.